Kirkjuritið. Tryggingar. 45 rram, að hér er sízt af öllu verið að bera fram tillögur um að leggja nokkurn skatt á menn. Sá skattur, sem hægt er um að tala í þessu sambandi, liggur í áföllunum sjalfwn og hann er, eins og allir vita, ekki borinn undir atkvæði, hann verða þeir að bera, sem fyrir honum verða. Hér er veriö að benda á nauðsynina og leiðina ''l þess að kaupa af sér þennan þunga skatt og það á pann hátt, sem að mestu og víðtækasta gagni getur komið, og það mál þolum vér sízt af öllu, að sé látið aSgja í láginni og hummað fram af sér. Það skilja væntanlega allir, að það er ekki auðvelt í stuttu máli að rita um mál, sem er svo stórt og víðtækt, að heila ritgerð mætti rita um hvern einstakan lið þess. kg hefi vitanlega orðið að láta mér nægja hér, að drepa 1 stuttu máli á aðalatriðin. En ég vöna þó, að mönnum skiljist, að þetta mál er svo stórt og þörfin svo aðkall- ^ndi, að hér duga engar kákviðgerðir, og að mikil rétt- indi geta ekki fengist án þess, að þeim fylgi miklar og ~~ fyrir margan mann erfiðar skyldur. Þá er spurn- 'ngin, hvort vegur meira, skyldur eða réttindi, og um svarið við þeirri spurningu, finst mér, að enginn maður geti í þessu máli verið í nokkrum vafa. Gisli Skúlason.