48 Um kirkjulega starfsemi á liðnu ári. Kirkjuritið. siðastl. sumar var haldinn, og vinnur áfram að því, að almennir kirkjufundir komist á. Jóhannes Sigurðsson, sjómannaprédikari á Akureyri, hefir á liðnu ári bæði starfað þar, í Glerárþorpi og á Siglufirði. Pétur Sigurðsson, kennimaður í Reyjavík, hefir ferð- ast um landið, flutt fjölda erinda um kristindómsmál og stofnað félög til eflingar kristilegri menningu (Vor- aldarf élög). Steingrímur Bnediktsson, kennari í Vestmannacyjum, hefir starfað þar að kristindómsmálum, einkum fyrir sjómenn. # Valdimar Snævarr, skólastjóri í Neskaupstað á Norð- firði, hefir flutt þar flokk af kirkjusöguerindum. 6. Hallgrímsnefndir hafa starfað um land alt á liðnu ári og orðið mikið ágengt i söfnun fjár til Hallgrims- kirkju í Saurbæ. Aðalforustu hefir haft Ólafur Björns- son, kirkjuráðsmaður á Akranesi. Sumar nefndirnar hafa eirinig unnið að öðrum kirkjulegum málum í söfn- uðunnm, og gjöra margir sér góðar vohir um þrótt- mikla. starfsemi nefnda þessara í framtíðinni. 7. Kirkjur hafa verið reistar á þessum stöðum: Dag- verðarnesi í Dalasýslu, Kolbeinsstöðum í Hnappadals- sýslu, Vik í Mýrdal, Krossi í Landeyjum og Garpsdal i Barðastrandarprófastsdæmi. Þrjár hinar fyrstnefndu voru vígðar á árinu, en hinar tvær biða vígslu til næsta vors. Þá hefir verið unnið að hinni nýju steinkirkju á Tjörn á Vatnsnesi, og verður smíði hennar væntanlega lokið á þessu ári. Loks hefir Brettingsstaðakirkja á Flateyrardal, er fauk í ofsaveðrinu á næstliðnum vetri, verið endurreist. Hafa söfnuðirnir sýnt mikinn áhuga í þvi að koma upp kirkjum þessum og gjöra þær sem veglegastar. Margar kirkjur hafa verið prýddar á árinu og ýmsar eignast góða gripi. Meðal arinars hefir Dóm- kirkjan eignast nýtt pípuorgel, dýrt og vandað, en dóm- kirkjuorgelið, sem áður var, hefir verið flutt til Isa-