Kirkjuritið. Um kirkjulega starfsemi á liðnu ári. 49 fjarðar og sett þar i kirkjuna af sama manni, sem bygði dómkirkjuorgelið nýja. Áhugi safnaða á því að prýða kirkjur hefir aukist ár frá ári. 8. Bækur og blöð. Merkasti kirkjulegi bókmentavið- burðurinn á árinu var útkoma nýju Helgisiðabókarinn- ar. Megináherzla er lögð í henni á það, að tilbeiðslan í guðsþjónustunum aukist. Er mörgu breytt i þeim til- gangi frá þvi, sem áður var. Prestar og söfnuðir eru nú að taka bókina til notkunar. Af öðrum bókum má nefna: Messusöngva" Sigfúsar Einarssonar. Kirkjusögu" eftir Valdimar Snævarr. Bækur kristilegs bókmentafélags: Alt eða ekkert" eftir Elisabeth Beskow; Sjá, hann kemur" eftir Árna Jóhannsson og Árbók 1934". Framhaldslíf og nútímaþekking" eftir sé'ra Jakob Jónsson. Skólaræður og önnur erindi" eftir séra Magnús Helgason. Sögur handa bömum og unglingum", sagðar af séra Priðriki Hallgrímssyni. Tímaritin: Prestafélagsritið" XVI. ár og Jörð" IV. ár komu út á árinu, og blöðin: Bjarmi", Kirkjublað" °g Mánaðarblað K. F. U. M." Viðbæti við sálmabók til kirkju- og heimasöngs" Var hætt að selja, eins og kunnugt er, þótt í honum Vaeru margir mjög fallegir sálmar. Séra Benjamín Kristjánsson hefir skrifað í timarit og olöð rökstuddar og góðar greinar til varnar kristni og kirkju. Þetta yfirlit yfir starf kirkjunnar ætti að nægja til þess, ag ósanna sleggjudómana um aðgerðarleysi henn- a*\ sem margir taka upp hugsunarlaust og af þekking- árskorti hverir eftir öðrum. Auðvitað verður kirkjan að eflast meir, það er eng- 4