Kirkjuritið. Mál á Alþingi er kirkjuna varða. 59 stjórn safnaðanna og heimila söfnuði að kalla sér prest, eins °g lagt var til hjá oss i frumvarpi Kirkjumálanefndar 1930. S. P. S. MÁL Á ALÞINGI ER KIRKJUNA VARÐA. Kíkisstjórninni er heipiilt að kaupa jörðina Syðra Laugaland 1 Óngulsstaðahreppi í Éyjafirði fyrir 32000 kr. og færa þangað Prestssetur í Grundarþingaprestakalli. Ennfremur að selja núver- andi prestssetursjörð, Saurbæ í Eyjafirði. Samþykt 30. október 1934. t lögum um aldurshámark opinberra embættis- og starfsmanna, er samþykt voru 22. des. 1934, er þetta ákvæði, er varðar presta sérstaklega: Ef embættismaður, sem hlotið hefir embætti sitt með al- roennri kosningu, fer frá samkvæmt ákvæðum þessara laga, skal honum heimilt að sækja um embætti að nýju. Hljóti hann kosn- lngu, skai hann fá veitingu fyrir embættinu um 5 ár. Lög um útvarpsrekstur, samþykt 28. nóv. 1934, mæla svo fyrir m- a-: Útvarpsráð skipa sjö menn. Skulu þrir þeirra og þrír u? vara kosnir hlutfallskosningu á Alþingi til fjögurra ára í senn, og þrír og þrír til vara, sömuleiðis kosnir hlutfallskosn- lngu meðal þeirra, sem útvarpsnotendur teljast og greitt hafa lögmælt gjöld". Með lögum þessum er þannig réttur kirkjunnar til þess að velja einn mann í útvarpsráð afnuminn. A fjárlögum hefir styrkurinn til húsabóta á prestssetrum ver- ið laekkaður niður í 12000 kr. DýrtiSaruppbót presta verður hin sama sem 1934. Þessar tillögur voru feldar: Tillaga um 6000 kr. styrk til utanfara þresta skv. 1. nr. 18, (!- júlí 1931. Tillaga um 2000 kr. (til vara 1500 kr.) fjarveitingu til þess ao létta ferðakostnað þeirra leikmanna, sem lengst eiga að sækja kirkjufund, er halda á í Reykjavík eða á Þingvöllum sumarið 1935.