Kirkjuritið. ERLENDAR FRETTIR. Frá Danmðrku. Á næstliðnu ári urðu mannaskifti á Sjálandsbiskupsstóli, seni talinn hefir verið virðulegastur þeirra átta dönsku biskupsstóla og jafnan verið skipaður fremstu andans mönnum hinnar dönsku kirkju, enda hefir Sjálandsbiskup verið yfirbiskup (primas") kirkjunnar. Síðan 1911 hafði Harald Ostenfeld (fæddur 1804) þessa virðu- legu stöðu á hendi og verður ekki annað sagt, en að hann hafi sónit sér vel í henni, enda þótt þar væri ekki um þann lær- dómsljóma að ræða, sem prýtt hefir ýmsa, og jafnvel flesta, fyrirrennara hans þar (t. d. Mynster, Martensen, Skat Rördam, Peder Madsen). Ostenfeld hafði áður en hann gerðist biskup, verið prestur í einu af úthverfum Kaupmannahafnar (við Sol- bjerg-kirkju), og fremur lítið borið á honum. Það vakti þvi undrun nokkra er Jakob Appel, þá kirkjumálaráðherra, kvaddi Ostenfeld til þessa virðulega embsettis eftir dr. P. Madsen lát- inn, en hann leit svo á, og það með réttu, að eins og komið væri högum Kaupmannahafnar, væri ekki minni þörf á, að þangað veldist raunhæfur athafnamafmr en lærdómsmaður. Þess er þá heldur ekki að dyljast, að Ostenfelds biskups verS- ur lengst minst sem hins raunhæfa leiðtoga athafnamanns- ins, og umfram alt verður hans minst í sambandi við kirkju- fjölgunarmál Kaupmannahafnar" (Köbenhavns Kirkesag), sem átti öflugan forvígismann, þar sem Ostenfeld var, um 18 ára skeið. Hann hafði á kandídatsárum sinum dvalist um eins árs tíma á Englandi og sérstaklega i úthverfum Lundúnaborgar kynt sér það starf, sem þar var unnið af kirkjunnar mönnum til viðréttingar þeim mörgu, sem þar háðu stríð við óheillaöfl lífsins. Hann varð því snemma vinur smælingjanna" og með lif- andi áhuga á öllu, sem varðaði sannar þjóðfélagsheillir. Mætti jafnvel telja hann til kristinna jafnaðarmanna". Hann var frá byrjun formaður félagsskaparins Dansk-islandsk Kirkesag", sem vinnur að eflingu vináttuþels með kirkju lands vors og hinni dönsku kirkju. Hafði hann ásett sér að sækja ísland heim á næsta vori, ef heilsa og líf leyfði. Á næstliðnu sumri sótti