64 Erlendar fréttir. Kirkjuritið. Mussolini hefir boðið öllum skólastjórum á ítalíu að leggja mikla áherzlu á, að nemendur kynnist Nýja-testamentinu sem bezt. Samkvæmt erfðaskrá Sadhu Sandar Singh's hefir húsi hans verið breytt í klaustur, og dvelja þar nú fjórir Sadhuar", sem hafa sér til framfærslu tilskilda upphæð, ánafnaða af Sundar Singh. Síðustii orð Hindenburgs við Miiller ríkisbiskup voru þessi: Sjáið þér um, að Kristur sé prédikaður alstaðar í ríkinu". Síðastliðið ár hefir meðlimum kirkjunnar fjölgað mikið í Austurriki. í Vínarborg hafa 20000 horfið til kaþólsku kirkj- unnar, 3000 til hinnar gamalkaþólsku og rúm 9000 til evangelsku kirkjunnar. Af hinum síðasttöldu voru flestir jafnaðarmenn. Hið sama á sér stað um alt ríkið. Árlega er haldin bókasýning á Spáni, og þótti hin síðasta tak- ast einkar vel. Sérstaka athygli vakti sýning Rrezka Bibliufé- lagsins. Það sýndi bækur sínar í 40 sölum undir laufkrónum við einhverja fegurstu skemtigötu höfuðborgarinnar. Var þar altaf þröng mikil dagana 10, sem sýningin stóð. Seldust þá alls 1382 Biblíur, 1054 testamenti og 32272 guðspjöll eða önnur rit Biblíunnar. Alls 34708 bindi. Var sú sala enn meiri en nokk- urir höfðu áður gjört sér vonir um. 5to»o*o*o»otato*c:a«D*cDta*oto*C3tcD*c3*o* Bókaverðlaun, ö 15 til 47 króna virði, til þeirra, er 5 útvega kaupendur að ,Kirkjuritinu'. ¥ Þeir sem útvega 5 kaupendur, fá 5 árganga af Presta- ¥ félagsritinu", eftir vali bókavarðar Prestafélagsins; þeir ^ sem útvega 10 kaupendur, fá 3.16. árg. af sama riti; en n þeir, sem 15 kaupendur útvega, fá auk þess 1. árg. ritsins, jj meðan upplagið endist. Útsölumenn vitji verðlaunanna hjá bókaverði félagsins, séra Helga Hjálmarssyni, Hring- braut 144, sími 4776, Reykjavík, en standi honum fyrst skil á áskriftargjaldi kaupendanna, að frádregnum 20% í sölulaun. Verðlaun þessi ná ekki til skyldurita presta.