Kirkjuritið - 01.12.1938, Blaðsíða 29

Kirkjuritið - 01.12.1938, Blaðsíða 29
Kirkjuritið. SUÐUREYRARKIRKJA í SÚGANDAFIRÐI Árið 1926 stofnaði Kvenfélagið Ársól á Suðureyri Kirkjubygg- ingarsjóð Suðureyrarkirkju með 300 kr. framlagi, og gjörðist þar með brautryðjandi þessa mikilvæga máls. Málið hlaut þegar vinsældir hjá söfnuðinum, og á safnaðarfundi t. des. 1927 var kosin 9 manna nefnd (6 karlar og 3 konur) til þess að annast fjársöfnun til byggingarinnar. Nefndin var kölluð Kirkjubyggingarncfnd Suðureyrar, og hefir hún starfað að málinu alt til þessa. Á safnaðarfundi 29. apríl 1934 var verksvið nefndarinnar aukið og henni þá falið að byggja kirkjuna þegar þess væri kostur, en jafnframt sett að skilyrði, að byggja skuldlaust að mestu. Ég veit ekki dæmi til þess, að hér í sveit hafi nokkurt nauð- synja- og framfaramál mætt betri skilningi og samhug manna en kirkjubyggingarmálið naut þegar í byrjun og á alllöngum tíma. Mátti heita svo, að allir Súgfirðingar legðu fram fé, eða liðveizlu fjársöfnuninni á einhvern hátt. Er isérstaklega ánægjulegt að minnast hins eldlega áhuga, sem lýsti sér í fjársöfnuninni á þess- um árum. Þá voru gefnar fiskilóðir, sem allir vélbátar lögðu með fúsum vilja skipshafnarinnar, um lengri tima, en skóladrengir, undir stjórn hr. Friðberts Friðbertssonar, núverandi skólastjóra, °S hr. Þórðar Þórðarsonar símstjóra, unnu að beitingu og aðgerð lóða. Enn aðrjr önnuðust aðgerð og söltun fisksins, alt sem sjálfboðaliðar. Þá fluttu fyrirlesarar erindi og sjónleikar voru sýndir En gjafir — minningar- og sumargjafir, áheit og samskot streymdu að. Enda safnaðist á nokkurum árum allstór sjóður, svo að í árslok 1931, eða á 4 árum, var sjóðurinn orðinn kr. 11221,77. En þar sem árferðir fór þá versnandi, dofnaði jafnframt yfir fjársöfnuninni, af eðlilegum ástæðum. Og þar eð ýmsar aðrar framkvæmdir þurftu einnig á fjárstyrk að halda, sá Kirkjubygg- •ngarnefndin ekki ástæður til þess, að halda söfnuninni mjög til streitu, að öðru leyti en því, að hafa sumardaginn fyrsta sem fastan söfnunardag. Enda fór nú sjóðurinn að færast í aukana af eigin ramleik, því að nú fór að muna mikið um vextina. Þegar augljóst var, að fjársöfnunin mundi ekki gefa lengur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.