Kirkjuritið. Sálmur. Syng þú, herrans hjörð, hjartans þakkargjörð honum, sem þér hjálpar, leiðir, styður. Gaf hann sálum sýn, segir enn til þin fögur orðin: Frið minn gef eg yður. Ljósið þitt og lif, lífsins eina hlíf, var hann bæði og verður allar stundir. Dæmið dýrsta gaf, drag þar lærdóm af, síðsta þar til sólin gengur úridir. Enginn eins og hann elsku sýna kann. Vitni þar um verk og orð hans bera: Faðir fyrirgef, f engið kvöl eg hef vegna þess þeir vita ei hvað þeir gera. Syng þú, herrans hjörð, hjartans þakkargjörð honum, sem að hörmung varð að líða. Vinn þú kærleiks verk, vertu í trúnni sterk, meðan hér skal brautargengis bíða. Halldör Benediktsson.