90 V. V. S.: Sjá, konungur þinn kemur. Ó, Kristur, kom og taktu þér konungsvald á jörð, og yfir veikum vaktu og vernda þína hjörð. Vér höfum vilzt af vegi; oss vís er glötun bráð. Ó, Guðs son guðdómlegi, vor geym af þinni náð! Sjá, konungur þinn kemur! Sjá, Kristur nálgast borgarhlið. Hvað getur glatt oss fremur? Hvað gefur sælli hjartafrið? Vér lyftum hreldum hjörtum í hjartans ást og trú. Vér búumst skrúða björtum sem börn vér syngjum nú: Dýrð, dýrð í hæstu hæðum og hósíanna' á jörð! Þér lof af instu æðum og eilíf þakkargjörð! Vold. V. Snæoarr. Marz.