4 Ásmundur Guðmundsson: Jan.-Febr. Annaðhvort þú átt að stíga eða dýpra niður síga. Spádómurinn í Opinberunarbókinni um fjóra reið- menn virðist nú kominn fram. Sigurvegarinn og bar- dagahetjan hafa farið um löndin og höfin heimskaut- anna milli. Því næst fram hinn þriðji vendi, þessi svörtum fáki rendi, og á metum hélt í hendi. Eftir honum hungurbleikur hryggðarmúgur skreiddist veikur, líkt sem kaldur kolareykur Aftast fór hinn allra mesti uggur stóð af heljar gesti Bani fram á bleikum hesti. Og þótt orka sé leyst úr læðingi, sem valdið getur ægi- legasta hruni og tortímingu, þótt mannkyninu sé fengið í hendur fjöregg þess og megni að mölva eins og óviti, þá er enn lögð áherzla á stríð og vígbúnað. Enn blasir við breiður og geigvænlegur vegur til Heljar. Hins vegar vakir með mönnunum þrá til þess, sem betra er ef til vill máttugri en nokkuru sinni fyr um lang- an aldur, þrá eftir sælla og bjartara heimi, þar sem dyggvar dróttir byggja, réttlæti og sannleiki, kærleiki og friður, þrá eftir nýrri öld að baki fæðingarhríðanna, dýrum gr'óðri upp af blóði og tárum. Þessi þrá eftir uppstigningu mannkynsins brennur heitast innan kirkju Krists, þ. e. með þeim mönnum, sem eru sannir lærisveinar hans. Hún hefir jafnan brunnið þar síðan hinn fyrsta uppstigningardag, og máttur hennar er einkavon mannkynsins um það, að þessi veruleiki geti átt sér stað framunda'n. Söfnuður- inn fámenni á Olíufjallinu fyrir 19 öldum steig í raun