8 Ásmundur Guðmundsson: Jan.-Febr. En hvað er það að vera vottur Krists? Ýmsir ætla, að það sé að vitna", sem svo er kallað, tala um frelsun sina í Kristi". Stundum eru þeir, sem það gjöra, sannir vottar Krists. En stundum hrópa þeir aðeins: Herra, herra. Gríska orðið yfir vottur er mar- tyros, og átti frumkristnin með því sérstaklega við þá menn, sem lögðu líf sitt í sölurnar fyrir Krist. Þetta bendir í rétta átt. Vottur Krists er sá, sem hefir orðið snortinn djúpt af anda hans og lætur áhrifin koma fram í lífi sínu og starfi. Dauðinn er aðeins hámark þeirrar kærleiksþ j ónustu. Að þekkja Krist er að þekkja velgjörðir hans. Þú veitzt, livað liann hefir fyrir þig gjört. Þegar andi hans hefir snortið þig heilagur andi komið yfir þig, þá láttu það ummynda líf þitt, svo að það boði hann. Þá stefnir það á æðri leiðir og birtir i verkahring þínum ofurlítinn hluta af Guðs ríki. í guðspjöllunum er átak- anleg saga um geðbilaðan mann. Öll tilveran var ein- hvern veginn gengin úr skorðum fyrir honum, og hann æpti og barði sjálfan sig grjóti. Þá sá hann Jesú og varð albata. Sólin skein.honum björt og glöð, og hér- aðið blasti við fullt af yndi. Hann vildi fara í trúboðs- för með Jesú. En Jesús sagði: Far þú heim til þin og þinna og seg þeim, hve mikla hluti Drottinn hefir fyr- ir þig gjört". Og lif og starf þessa manns greiddi siðar boðskap Jesú veg til hjartna fólksins í því byggðarlagi. Svo skyldi einnig þér fara heima i verkahring þínum. Láttu sem þú sjáir ganga sjálfan Jesú undan þér og rís upp til fylgdar við hann í hugsunum, orðum og verkum. Þetta er öllum unnt i krafti hans, er þeir vilja einlæglega. Líttu t. d. á mæðurnar, sem oft eru fremst- ar i þessum flokki, livernig þær fórna 'sér fyrir heimili sín og sýna þannig lögmál Krists og ríkis hans. Þar sér þú tæran, heilagan loga stíga upp frá arni heimilanna. Vinn starf þitt i anda Krists. Það gildir einu, hvert það er, svo framarlega sem það er' heiðvirt starf. Minnstu