KirkjuritiS. BIBLÍUR. Eins og mörgum landsmönnum er kunnugt, á Þorsteinn Þor- steinsson sýslumaSur og alþingismaSur í BúSardal eitthvert mesta og bezta safn íslenzkra bóka, sem nú er til i einstaks nianns eign. Ber þaS og frá, hve vel bókasafn þetta er úr garöi Rert, bæði um bókaval, frágang bókanna, hirðingu og alla þekk- 'ngu á smáatriðum, er bókamenn einir þekkja til fulls og kunna að meta. Hefir hann reist sérstakan sal við hús sitt til varð- veizlu bókanna. Hér er mynd af Biblíum í safni hans, og munu þar vera allar Biblíur, er út hafa komið á íslenzku. Röðin er þessi, frá vinstri talið: Þorláksbiblía 1644, GuSbrandsbiblía 1584, Steinsbiblía ^728, Reykjavíkurútgáfa 1859, ViSeyjarútgáfa 1841, Reykjavíkur- útgáfa 1908 (var dregin til baka), Reykjavíkurútgáfa 1912, Summaría 1589 og 1591, Waysenhúsbiblía 1747, Oxfordútgáfa 1866, Biblía 1813, Biblía, London 1914. Yfirleitt eru Biblíunum raSaS eftir stærS, en getur þó nokkru skeikaS um hinar elztu l'tgáfur eftir þvi hve mikiS bækurnar eru skornar. Aí. J.