KirkjuritiS. Signrðnr Z. Gíslason, prestur á Þingeyri. Hrapa&i til bana á leio \\\ Itirkju sinnar á nýársdag 1943. In memoriam. Þú gekkst að heiman glaður sveinn, er glóði dögg í hlíðum og sorgarskuggi sást ei neinn á sumarmorgni fríðum, og enn var bjart um alla jörð og eintóm sói um Vopnafjörð. Er leizt þú upp í loftin blá á lífsins árdagsstundu, þér brann í huga heilög þrá, sem hrærði þina lundu: Að flytja boðskap frelsarans um fagra veröld kærleikans. ,Sjá hvíta akra!" hrópar hann úr himnunum sínum björtu, mig vantar ennþá verkamann, að vinna hin blindu hjörtu". Þá kaustu að bera bróður-orð um blóði roðna heljarstorð. Og barnslegt hjarta og hrekklaust sló svo hlýtt í þínum barmi, þar grunlaus ást til allra bjó, sem áttu í neyð og harmi. Þú vildir allra bæta böl, og bróður þíns var sjálfs þín kvöl.