Jan.-Febr. Séra Halldór Bjarnason fráPresthólum. Eins og áður hefir verið getið hér í rit- inu, andaðist séra Hall dór Bjarnarson hér í bænum 19. sept síðast- liðinn. Hann var fæddur að Eyjólfsstöðum á Völl- um 11. nóv. 1855, son- ur Bjarnar umboðs- manns Skúlasonar. Missti hann þegar á barnsaldri föður sinn. Móðir hans var Berg- ljót Sigurðardóttir, bónda á Eyjólfsstöð- um. Hann varð stúdent frá Lærða skólanum 1882 og tveimur árum síðar kandídat frá Prestaskólanum. Sama ár, 6. sept., voru honum veittir Presthólar í Norð- ur-Þingeyjarprófastdæmi, og tók hann prestvígslu 14. s. m. Árin 188997 var hann próf astur. Þá var honum vikið frá embætti. En Sléttubúar kusu hann fyrir fríkirkjuprest, og hann hlaut aftur prestsembætti sitt 1901. Tíu árum síðar varð hann einnig prestur i Skinnastaðarprestakalli, er bæði þessi prestaköll sam- einuðust. Hann fékk lausn frá prestsskap, sjötugur að aldri, 1. júní 1926. Síðan átti hann heima hér í bænum í skjóli nánustu vandamanna sinna. . Skólabróðir séra Halldórs og vígslubróðir, séra Krist- inn Daníelsson, fer m. a. um hann þessum orðum: