Jan.-Febr. . Séra Kjartan Kjartansson. Minningarorð. Útfarardagur hans var í gær (13. nóv.). Kirkjan var fullskipuð af fólki. Það sýndi ljóslega, að séra Kjartan heitinn átti marga vini. Skapgerð hans og hjartalag var þess eðlis, að hann laðaði menn að sér. Séra Kjartan var fæddur 27. marz 1868 i Ytri-Skóg- um undir Eyjafjöllum. Ólst hann þar upp hjá foreldr- um sínum, Kjartani Jónssyni sóknarpresti og konu hans, Ragnhildi Gísladóttur. Síðan fluttust þau að Elliðavatni í Seltjarnarneshreppi og séra Kjartan með þeim. Árið 1883 gekk hann í Latínuskólann í Reykjavík og tók stúdentspróf 1890. Sama haust innritaðist hann í Presta- skólann í Reykjavík og tók embættispróf í guðfræði 1892. Vígðist hann til Staðarprestakalls í Grunnavík 30. apríl 1893. Settur prestur á Sandfelli í Öræfum yar hann í eitt ár (19171918). Fékk veitingu fyrir Staðarstað í Snæ- fellsnesprófastsdæmi 5. apríl 1922. Um lausn frá embætti sótti hann í fardögum 1937. Eftir það bjó hann i Gíslabæ á Hellnum til ársins 1943, að hann fluttist á Seltjarnar-