44 Frú Elísabet Jónsdóttir. Jan.-Febr. Það var vorhugurinn, sem einkénndi séra Kjartan framar flestu öðru. Um dimmar dyr dauðans liggur leið hans og vor allra heim í vorið. Sigurgeir Sigurðsson. (KirkjublaSið). Frú Elísabet Jónsdóttir frá Grenjaðarstað. F. 1. jan. 1869. D. 13. apríl 1945. A viðreisnartíma, við hafið bjart og blátt, er blikar við sólu og rís á öldum háit, þú fæddist til heilla að heiman gerð í för með hugsjón til lista og töfrabros á vör. Við fjörusand bláan og Plóans grænu voð þú fagnaðir draumsjón og namst in háu boð. Þar Hekla rís í norður með hárra fjalla vörð, þú hófst þína göngu á morgunbjartri jörð. Þar hafblikið seiddi við heitan röðul-koss, þú hlýddir, úr norðri er kvað inn gullni foss, og dafnaðir heilluð við elfarinnar ós, þar ax prýðir melstöng og breiðist eyrarrós. Af skáldrænu geði var skoðuð lífsins mynd frá skýbakka í hafi að sólu roðnum tind og hlustað á óma, þar heyrði svan og þröst, og harpa stormsins knúðist við suðurstrandarröst.