Kirkjuritið. Aðalfundur Prestafélags íslands 1945 Aðalfundur Prestafélags íslands var haldinn á Akureyri 9. ll- sept. samhliða kirkjufundinum. Við messuna í upphafi beggja 'undanna prédikaði próf. Ásmundur Guðmundsson fbrmaður telagsins. En biskup landsins og séra Friðrik Rafnar þjónuðu íyrir altari. Við sönginn var notuð hin nýútkomna sálmabók. Fundir voru haldnir í hátíðasal Menntaskólans á Akureyri, °g voru skólameistari, fulltrúar kirkjufundarins og aðrir áhuga- JBenn boðnir til þátttöku sem gestir. Sýndi skólameistari fund- inum frábæra gestrisni. Yms mál voru tekin fyrir. Þar á meðal útgáfumál. Formað- ur skýrði frá þvi, að Biblíusögur hefðu verið gefnar út i 3 heft- Uni> og ný útgáfa af barnasálmum kæmi innan skamms. Enn- 'remur hugvekjusafn. Kirkjuritið kemur út sem áður. Var og ahugi ríkjandi um útgáfumálin, og í þvi sambandi var rætt um l>að, að árið 1937 væru 100 ár liðin frá stofnun Prestaskól- ans, 0g þvi viðeigandi að gefa út minningarrit í tveim bind- Um. í öðru bindinu yrði saga skólans og guðfræðideildarinnar, en í hinu kandídatatal. Var stjórn félagsins falið að hefja nú l-'egar allan nauðsynlegan undirbúning. Launamál prestastéttarinnar voru nokkuð rædd, aðallega ein- stök atriði, er snertu framkvæmd hinna nýju launalaga og áhrif beirra á önnur gildandi lög, svo sem lög um hýsingu prest- Setra o. fl. Samvinna við íþróttafélög hefir áður verið rædd á sameig- mtegum fundi Prestafélagsstjórnarinnar og nokkurra forstöðu- nianna þessara félaga. Hefir verið gert ráð fyrir því, að þegar ferðafélagsfólk hefði aðsetur í grennd við kirkjustaði á helgum dögum, yrði haldin guðsþjónusta. En um páskana i vor höfðu 1 Prestar flutt guðsþjónustur í Skíðaskálanum sunnanlands og i -amráði við íþróttamenn. Prumvarp milliþinganefndar í skólamálum um barnaskóla og gagnfræðaskóla var eitt af aðalmálum fundarins, og auk prest- "nna tók þar þátt í störfum Snorri Sigfússon námsstjóri og Vald. V. Snævarr fyrrv. skólastjóri. Eftirfarandi ályktun var sam- Pykkt: >.Aðalfundur Prestafélags íslands þakkar störf skólamála- nefndar og fagnar framkomnum frumvörpum hennar um