60 ASalfundur Prestafélags Islands. Jan.-Febr. fræðslumál landsins og samræmt skipúlag þeirra og hvetur til þess, að frumvarpið verði að lögum. Jafnframt vill fundurinn leggja áherzlu á, að kristinfræði verði meðal höfuð-kennslugreina,, a. m. k. til loka unglinga- skóla, og hljóti auk þess nokkurt rúm á kennsluskrá allt til gagn- fræðaprófs. Með hliðsjón af framkomnum frumvörpum um breytta skipan skólamála í landinu samþykkti fundurinn að kjósa 5 manna nefnd, er athugaði, hvort heppilegt mundi að breyta aldurstak- mai'ki því, er nú gildir um fermingu. i nefndina voru kosnir séra Guðbr. Björnsson, séra Jón Þorvarðsson, séra Björn Magn- ússon, séra Jón Guðnason og séra Guðm. Einarsson. Fríðarmál. Samþykkt svohljóðandi tillaga frá séra Guðbrandi Björnssyni pjsj séra Jakob Jónssyni: Fundurinn beinir þeirri ósk til biskups, að hann athugi hvort ekki sé framkvæmanlegt að ná samkomulagi milli krist- inna kirkjufélaga um að hafa ákveðinn dag á ári hverju friðar- messu um allan hinn kristna heim". Um stéttarhjálp við presta á Norðurlöndum var samþykkl svohljóðandi tillaga: Aðalfundur Prestafélags íslands telur æskilegt, að prestar þjóðar vorrar rétti bróðurhönd bágstöddum embættisbræðrum sínum í Noregi og Danmörku og að nefndin, sem síðasta presta- síefnc setti til að undirbúa heimsóknir erlendra presta, stuðli að því að koma á persónulegum samböndum milli prestanna i þessum efnum". Tillögumaður er séra Sigurbjörn Á. Gíslason, formaður nefndarinnar. Á mánudagskvöld, 10. sept., flutti séra Friðrik A. Friðriks- son prófastur erindi í hátíðasal menntaskólans og nefndi hann það tímamót. Er það erindi prentað í siðasta hefti Kirkjuritsins. Fundir hófust jafnan með söng og bænagjörð. Fluttu þeir hugvekjur við morgunbænir séra Árni Sigurðsson og séra Guð- brandur Björnsson prófastur. Fundarslit fóru þannig fram; að aldursforseti, præp. hon. séra Ólafur Magnússon las úr 2. kapí- ula I. Pétursbréfs og bað bænar. Skömmu síðar var gengið til kirkju, og fór þar fram altarisganga. Þjónustu höfðu á hendi Friðrik J. Rafnar vígslubiskup og séra Jakob Jónsson. Stjórn félagsins var endurkosin, en hana skipa: Próf. Ás- niundur Guðmundsson form., séra Árni Sigurðsson, séra Frið- rik Hallgrimsson dómprófastur, séra Guðm. Einarsson, séra Jakob Jónsson. Fundinn sóttu 3040 prestar, ásamt biskupi. Jakob Jónsson.