62 Deildarfundir Prestafélagsins Jan.-Febr. kennsla fyrir kirkjuorganista geti fariö sem víðast fram á landinu". Lindirí', rit Prestafélags Vestfjarða (frummælandi séra Jón Ólafsson, prófastur, Holti). Gerð var í því máli eftirfarandi sam- þykkt: Fundurinn samþykkir að fela stjórninni að hefja undirbúning að útgáfu Lindarinnar" og gefa hana út, þegar hún sér það fært". Sendiprestar (Frummælandi séra Jón Kr. ísfeld, Bíldudal). Samþykkt var: Fundurinn fer þess á leit við Prestafélag íslands, að það taki aftur upp ferðapresta". Um öll þau mál, sem fram komu á fundinum, urðu miklar umræður, sem birtu einhuga áliuga fundarmanna á málum kirkju- og kristindóms. Stjórn félagsins var endurkosin, en liana skipa: Séra Jón Ólafsson, prófastur, Holti, formaður. Séra Einar Sturlaugsson, prófastur, Patreksfirði, gjaldkeri. Séra Eiríkur J. Eiríksson, Núpi, ritari. Fundínum lauk að kvöldi þess 27. með bæn í Núpskirkju. Formaður félagsins flutti bænina og kvaddi fundarmenn og árn- aði þeim heilla og blessunar. Aðalfundur Hallgrímsdeildar. Ár 1945, þriðjudaginn 28. ág., var aðalfundur Hallgríms- deildar settur í Stykkishólmi. Fundurinn hófst kl. 4.30 siðdegis með þvi, að sunginn var sálmurinn nr. 5, en því næst flutti séra Magnús Guðmundsson bæn og las síðari hluta 36. Davíðssalms. Á eftir var sunginn sálmurinn nr. 230. Þá var stutt hlé, en að þvi loknu sagði séra Magnús Guð- mundsson, er var einn mættur úr stjórninni, fundinn settan. Hinir stjórnarmenn voru forfallaðir, annar vegna veikinda, en liinn vegna embættisanna. Um leið og séra Magnús setti fundinn ias hann áhrifaríkt bréf frá formanni Hallgrímsdeild- ar, séra Þorsteini prófasti Briem. Fundurinn sendi formanni deildarinnar eftirfarandi skeyti: Þökkum bréfið. Biðjum allir um blessun Drottins þér og þiu- um til handa. Kol. 1,26." Þá var formanni Prestafélags íslands sent svohljóðandi skeyti: Blessun og náð Drottins vors Jesú Krists sé með Prestafé- lagi Islands." Þá var fundi frestað til næsta dags.