Hvert einasta barn ætti að fá bókina »Þor og þróttur* í fermingargjöf! Preysteinn Gunnarsson skólastjóri segir meðal annars þetta um bókina Þor og Þróttur" eftir Ás- rnund prófessor Guðmundsson: » Þessi bók, Þor og þróttur, er einskonar kennslubók í sjálfsuppeldi, ekki fyrst og fremst til vits og lærdóms, held- ur öllu heldur vilja og tilfinninga, leiðsögn að því tornáða marki að verða heilsteyptur í skapgerð, verða að manni í beztu og sönnustu merkingu þeirra orða. Heilræðin eða boðorðin, sem hún flytur, eru ekki mörg og ekki flókin. ,,Vertu reglusamur, áreiðanlegur, einbeittur, þrautseigur". Með velvöldum dæmum sýnir bókin, hvernig þessar einföldu °g fáu lífsreglur geta nægt hverjum einum, með Guðis hjálp °g góðra manna, til að öðlast það þor og þann þrótt, sem til þess þarf að standast örðugleika lífsins eins og manni sæmir. Þessi bók á þarflegt erindi til allra, ekki aðeins til þeirra, sem ungir eru. Ég hefi lesið þessa bók oftar en einu sinni og sannfærzt æ betur og betur um, að hún er góð bók, hollur lest- ur og íhugunarefni hverjum þeim, sem vill verða að manni". Bókaverzlun Sigurðar Kristjánssonar, Bankastræti 3.