Kirkjuritið. Frelsari er oss fæddur". Texti: Lúk. 2, 1U. Heilög nótt, heilög jólanótl. Klukkur hringja til tíða. Hinar voldugu miklu og hljómfögru klukkur liringja og kalla unga og gamla, ríka og fátæka til líða, til Drottins húss, til lofgjörðar og þakkargjörðar. Og hin litla hljómveika klukka hringir einnig, kallar og hiður, hýður og boðar til ljóssins hátíðar, fæðingarhátíðar jötuharnsins litla, frelsara vors og drottins Jesú Krists. Og kirkjuklukkan, hvort sem hún er stór eða smá, hljómmikil eða hljómveik, kallar á þig, einmitt þig til að fagna fæðingu drottins þíns og frelsara. Til þín er hann kominn, fyrir þig fæddist hann, svo að þú þyrft- ir eigi lengur einn að ganga á vegum myrkurs og rang- lætis, heldur gætir gengið á vegum ljóssins og réttlæt- isins. Tii þín var hann sendur, þér var hann gefinn, sem bróðir, frelsari, droltinn, til þess að þú gætir glaðzt mikilli gleði, miklum fögnuði: fögnuði og gleði Guðs barna. 1 lágum kofa, í lélegu hreysi fæddist liann til þess, að eigi aðskildi ykkur auður og völd, skraut eða prjál. Lítið barn í lélegu hreysi var þér gefið til veg- semdar og upphefðar, til dýrðar og fagnaðar. Já, fagna þú bróðir, já, fagna þú systir, já, fögnum öll bæði ung og gömul, því að frelsari heimsins, frelsari minn og