Kirkjuritið. Sýn Vasils. 345 Skurtu gerði sjálfur krossmark fyrir sér. Vasil", kallaði hann. Vasil, hvað sérðu í sólinni, sem er að rísa". Vasil sneri sér að honum undursamleg birta blikaði í aug- um hans, en hann svaraði engu. Og aldrei fékk Skurtu að vit£^ um sýnina, sem Vasil sá, er hann horfði í hvel sólarinnar, sem var að koma upp. Á. G. þijddi. íííí Aðalfundur Prestafélags Vestfjarða Aðalfundur Prestafélags VestfjarSa var haldinn á ísafirði laug- ardag og sunnudag 21.22, sept. Aðalmál fundarins var altarissakramentíð. Hóf Einar Sturlaugs- son prófastur umræður um það, og tóku síðan margir til máls. Séra Jón Kr. ísfeld frá Bíldudal hafði framsögu um bindindis- mál. Var samþykkt tillaga i þá átt að skora á Alþingi og ríkis- stjórn að Mta fara fram hagfræðilega rannsókn á tjóni því, sem leiðir af sölu og neyzlu áfengis í landinu, og siðan þjóðarat- kvæðagreiðslu um algert áfengisbann á íslandi. Séra Jón Ólafsson prófastur i Holti benti á nauðsyn þess, að framkvæmdir þær, sem ákveðnar hefðu verið á Hrafnseyri, yrðu þegar hafnar á næsta ári, því að ella gæti svo farið, að staðurinn færi í eyði. Samþykkt var að skora á ríkisstjórnina að hraða þessum franikvæmdum sem mest. Jónas Tómasson tónskáld flutti erindi á fundinum um kirkju- kóra og kirkjusöng á Vestfjörðum. Samþykkt var að gefa út ársrit félagsihs Lindina" á þessu ári. Messur voru fluttar á sunnudag a ísafirði og í Hnífsdal. Þeir séra Einar Sturlaugsson og séra Jón ísfeld prédikuðn, en séra Þorsteinn Björnsson þjónaði fyrir altari. I stjórn félagsins voru kosnir: Séra Eiríkur J. Eiriksson, Núpi, formaður. Séra Einar Sturlaugsson prófastur, Patreksfirði, féhirðir. Séra Jón Kr. ísfeld, ritari. tttt-