Kirkjuritið - 01.10.1962, Blaðsíða 19

Kirkjuritið - 01.10.1962, Blaðsíða 19
Pétur SigurSsson: „Lýst eftir eldhuga“ CJVO heitir ritstjórnargrein í Kirkjuritinu, 6. liefti 1962. Stutt ^ en markverð grein og endar á þessum orðum: „Sendið greinar — sem brenna“. Um fertug mundi mér hafa þótt gaman að fá slíka áskorun. En til þess að vera ekki verri en hinir og hegða mér eins og ætlast er til af Islendingi, hef ég leitast nokkuð við að fela á síðari áratugunum þann eld, sem mér brann á vissu skeiði ævinnar. Ég segi þetta ekki kinnroðalaust. Er eldlegur áliugi sjaldgæfur? Og livers vegna? Á öllum öldum liafa þó verið uppi menn, sem flutt liafa mál, sem hefur ,,brennt.“ Hvað kveikti eldinn liið innra? Eitt sinn kvinkaði í sál manns, sem liét Stefán. Hann flutti ræðu, sem brenndi. Hvað sagði liann? Meðal annars þetta: „Þér liarðsvíraðir og óumskornir í lijörtum og eyrum, þér standið ávallt gegn heilögum anda, þér eins og feður yðar. Hver var sá af spámönnunum, sem feður yðar ofsóttu eigi? Og þá drápu þeir, er fyrirfram boðuðu kornu hins réttláta, cn lians framseljendur og banamenn hafið þér nú orðið.“ Þetta brenndi svo, að liinir ásökuðu fylltust bræði og „gnístu tönnum gegn honum.“ „Og þeir hröktu liann út úr borginni °g grýttu hann.“ Þessu fylgdi svo mikil ofsókn á hendur sófnuði Krists, en hinir tvístruðu fóru víðs vegar og hoðuðu fagnaðarerindi, og ekki leið á löngu unz kviknað var í róm- verska lieimsveldinu. Ríkið, sem í draumi Nebúkadnezar, er táknmyndað með herzlu járnsins, tók að bráðna í hitanum. Ofsóknartímabilin geisuðu hvert af öðru. Píslarvottabálin voru kynt og villidýrunum sleppt lausum á liina kristnu fanga. 23

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.