Málfundafélagið hefur nú hin tvö síðustu ár fært út kvíarnar. Má þar fyrst nefna, er það gekkst fyrir nemendaskiptum við Reykjavíkurskólann, og hafa þau nú órðið tvívegis. Er enginn vafi á því, að þetta er hin mesta Iyftistöng fyrir félagslífið, er að þessu hin mesta tilbreyting og kynning, ef rétt er á haldið. Þá hefur félagið stofnað innan sinna vébanda nú í haust bókasafns- deild, sem skal efla bókakost nemenda, einnig var stofnuð bókmennta- kvnningadeild, sem hífur það markmið að auka og glæða áhuga manna á íslenzkri tungu og bókmenntum. Að síðustu hefur það sett á stofn tón- listadeild, sem efli tónlistalíf skólans. Verður því ekki annað sagt, þrátt fvrir allt, en að málfundafélagið hefur sennilega aldrei, nú um langan tíma, Verið öflugra og aðsópsmeira en eininitt nú, og er gott íil þess að vita. Leyfi ég mér að þakka þetta a. m. k. að nokkru suðurför nemenda í fyrravetur. Annað fjölmennasta félag skólans í. M. A. er sennilega kraftmesta fé- lagið í skólanum, hefur það haldlð mörg mót og úthlutað mörgum æfinga- tímum í húsinu^ og er gott eitt um það að segja, en hins ber mönnum að gæta vel, að einn félagsskapur má aldrei yfirtaka allt annað. Tvær eru þær íþróttir eða menntir, sem virðast í mikilli lægð í skólan- um nú, en það eru bridge og skák. I miklum erfiðleikum gekk að koma á hinu árlega bekkjamóti í skák, og þó varð að strika sjöttubekkinga út, eftir miklar tafir af hcirra völdum, vegna þess að þeir ekki mættu. Má þeirra skömm lengi uppi og að makleikum öðrum til varnaðar á komandi árum. En samt verðum við að athuga eitt, við megum ekki skella allri skuld fyrir það, sem aflaga fer, á 6. bekkinga, þótt vissulega sé til mests af þeim ætlandi. Neðri bekkirnir verða einnig að taka á sig sinn þátt og sína ábyrgð til þess að verða starfi s'nu vaxnir, þegar þeir koma í hið gullna hásæti sjöttubekkinga. Þó situr sízt á 6. bekk áð bregða fæti fyrir aðra í þeirra storfum, eins óg þárna er gert. Vónir sfanda þó til, að skákin sé fremur á uppleið aftur, a. m. k. er nokkuð mikið teflt í neðri bekkjunum, og vil ég hvetja þá til þess að halda því áfram. Bridge hefur varla verið snert, það sem af er vetrinum, og engin keppni hefir vefið háð nú tilsvarandi þeirri, sem háð var í fyrra. Eru það bág öilög, sem þessi göfuga íþrótt hefir hlotið hér í musteri hinna frjálsu lista. Virðist þó sem nú hafi menn vaknað við vondan draum, er þeim barst áskorun starfsmannafélags KEA, og var þá komið nafni á hina ár- legu keppni milli kennara og nemenda. GELMIÍR o