Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1969, Blaðsíða 14

Kirkjuritið - 01.02.1969, Blaðsíða 14
Séra Pétur Sigurgeirsson: Að biðja um og fá fyrirgefningu Ég las einu sinni sögu af kristniboSa, sem var aS starfi í einu lieiðingjalandanna. — Og hann var að kenna svertingja Faðir vorið. — Það liafði gengið vel að kenna trúnemanum fyrri liluta bænarinnar. — Svo komu þeir að 5. bæninni, — óskinni til Guðs um það, að fá fyrirgefningu með því að fyrirgefa öðrum þeirra yfirsjónir. Þegar svertinginn komst að raun um bvað þetta þýddi, •— ef liann væri beittur órétti, væri móðgaður eða ofsóttur af einhverjum óvildarmanni, þá ætti liann að fyrirgefa lionuni til þess að geta sjálfur hlotið miskunn Guðs, þá stóð liann þegjandi upp og fór. — Kristni trúboðinn liorfði á eftir lion- um lít úr liúsihu. En eftir nokkra daga kom sami svertinginn aftur á fund læriföður síns og sagðist nú vilja lialda áfram að læra fallegu bænina, sem liann liafði verið byrjaður á að kenna honum. Og þeir tóku til þar sem frá var horfið, og nú gekk það greiðlega. — Ástæðan fyrir töfinni á lærdómnum var sú, að svertinginn átli óvin, sem liafði gert lionum eittlivað mikið á móti skapi, og liann ekki getað fyrirgefið. — En nú sagðist hann hafa farið til lians og þeir orðið sáttir, og bann liefði fyrirgefið lionum. Óvildar- og haturshugur þarf að liverfa Svipuð er sagan af Robert Louis Stevenson, sem átti lieima í mörg ár á Suðurhafseyjunum. Á liverjum morgni var liann vanur að leiða lieimilisfólkið í helgistund, sem jafnan endaði með Faðir vorinu. Morgun einn, er hann var að segja bænina, þá reis liann upp af knéfallinu og fór út úr herberginu. Fólkið liélt, að eittbvað hefði orðið að lieilsu hans, og spurði, hvort liann væri lasinn.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.