Kirkjuritið - 01.09.1973, Blaðsíða 48
L. G. TERRAY:
„Enginn skyldi nálgast Gyðinga
nema hann unni þeim”
Lífsstarf norsks kristniboða og prests meðal Gyðinga í Austur-Evrópu
Gísli Jónsson hét einn Skálholtsbiskupa forðum. Nöfnin Gisle
Johnson, Jon Johnson og Johannes Johnson eru allkunn í Nor-
egi, einkum með þeim mönnum, sem eitthvert skyn bera á
kirkju- og kristnilíf þar í landi. Einna kunnastur þeirra frœnda,
sem sagðir eru í cett við Gísla Skálholtsbiskup, munu þeir vera
Gisle Johnson, prófessor, sem var mikill áhrifamaður í norskri
kirkju á síðustu öld, og bróðursonur hans, Johannes Johnson,
kristniboði og síðar prestaskólakennari í Osló. Son þess síðar-
nefnda er Alexander Johnson, biskup í Hamri, gáfumaður og
mœlskumaður eins og þeir frœndur fleiri. Grein sú, er hér fer
á eftir, segir frá prestinum og kristniboðanum, Gisle Johnson,
er helgaði líf sitt Gyðingum í Ungverjalandi. í Noregi er mikiM
og vaxandi áhugi fyrir kristniboði meðal Gyðinga, einkum 1
ísrael. Greinin birtist fyrir rösku ári í fylgiblaði dagblaðsins
,,Dagen", sem helgað var kristniboði meðal Gyðinga. Höfund-
urinn er aðalframkvœmdastjóri Hins norska kristniboðs í ísrael
og ritstjóri tímarits þeirra samtaka.
238