FANNEY. 39 ingskoss. En svo hvarf hann. Pað greip mig undir eins, að þetta hefði verið jólasveinn, því ég vissi ekki annað en að allir karlmennirnir væru inni í bað- slofunni, og mér sýndist þetta þó vera karlmaður. Og því var hann að kyssa Boggu þarna í myrkrinu, hvað átti það að þýða? Ég var svo niðursokk- inn í að hugsa um þetta, að ég gleymdi hreint að gera henni bilt við, þegar hún kom að sliganum. En hvort sem Bogga heflr nú verið eitthvað óstyrk, eða hún heíir fiýtt sér of mikið, það veit ég ekki, en nokkuð var það, að henni lipaðist í stigannm, svo að hún misti diskinn og heil skriða af laufabrauði og alls konar jólasælgæti valt ofan i göngin. Bogga flýtti sér að tína þetta saman og var kafrjóð út undir eyru. Og nú kom ég henni til hjálpar. Hún var önug og spurði, því ég stæði þarna eins og draug- ur. En svo varð hún blíðari, og seinast lofaði hún mér tveim- Ur laufakökum, ef ég þegði yfir því sem ég hefði séð. Hún hlaut að meina jóla- sveininn. Nú voru jólin komin fyrir al- Vöru. Allir sálu yfir hrokafull- um diskum af jólamat, og svo kom mjólkurgraulur á eflir. Kértárjósin brunnu á rúmstokk- unum, á hillum og borðum og hvar sem annars var hægt að láta þau, og það var svo bjart í baðstofunni, að ég átti lengi vel erfitt með að líta upp. Ég var orðinn spakari við jólamat- inn og hafði það nú helzt mér til skemtunar, að renna augun- um um baðstofuna og líla fram- an í hvert andlit. Par á meðal leit ég framan í Sigga. Eg horfði nákvæmlega að, hvort hann hefði nokkurs- staðar skorið sig, þegar hann var að raka sig. En það var ekki. Hann hafði meira að segja prýkkað mikið við það og mér leizt óvenjulega vel á hann þetta kvöld. Hann var líka í sparifötunum, og það var hann annars svo sjaldan. Hann var knálegur maður og karlmann- legur, og ég vissi, að pabba lík- aði vel við hann. Þeir sátu saman á rúminu sínu, hann og faðir hans, og mig furðaði á því, að ég hafði ekki heyrt Jón Torfa segja eitt einasla ljótt orð síðan hann kom heim. Það hlaut að vera af því,. að nú voru jólin. En þeir voru svo óvanalega hljóðir, feðgarnir, að það var eins og þeir byggju yfir einhverju, Eftir matinn var farið að 'fara í jólaleiki. Baðslofunni var þrískift, þannig að hjónaherbergið var í öðrum endanum, svo var mið- baðslofan og svo stórt herbergi í hinum endanum. Allir tóku þált í leikjunum nema pabbi og