Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Jólakvešja frį K.F.U.M.

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Jólakvešja frį K.F.U.M.

						JÓLAKVEÐJA   FRÁ   K.   F.   U.   M.

ekki til þess að finna að því, sem þar fór fram.

Hann kom að tillaðan andans og sú kirkjuganga

bar ávöxt. Nú rann upp hin þráða stund. Það

var komið inn með barnið Jesúm. Þá hljómaði

lofsöngur af vörum gamla mannsins. Nú voru

komin sælurik jól.

Þú ratar úr herbergi þínu í annað herbergí,

i kirkjuna. Þú ert búinn að koma þangað oft.

Þjer þykir vænt um þann stað. Þú ert oft bú-

inn að syngja: »Hingað að snúa, hjer inni að

búa, hagsæld er mest«. Þú hlakkar til að kom-

ast í kirkju á jólunum. Þú manst eptir fyrir-

heitinu, sem þjer hefur verið gefið. Hin þráða

stund getur runnið upp nú á jólunum. Hvað

eru jólin? Hvað eru jólaguðsþjónustur? Heilög

augnablik, þegar komið er inn með barnið Jesúm.

Þegar þú heyrir jólaguðspjallið, þá fagnar þú

slíkum augnablikum, þegar þú syngur jólasálm-

ana, þá býður þú barnið Jesúm velkomið. Þá

eru jólin komin inn í þina sál. Þá fyllist hjarta

þitt fögnuði og þú átt þá sönnu jólagleði, gleði

heimsins er ekkert í samanburði við þá gleði.

»En ekki kemst jeg í kirkju á jólunum. Jeg

er bundinn við herbergi mittw. Þannig mæla

ýmsir, bæði eldri og yngri, nú á jólunum.

Heilsuleysi og ýmsir erfiðleikar banna þeim að

fara. En Droltinn man eftir þjer; og þegar jeg

syng:» Hvert fátækt hreysi höll nú er, því Guð

er sjálfur gestur hjer«, þá skal jeg með bæn

minni minnast þeirra, sem ekki komast í kirkju

á jólunum; þið sem ekki komist í kirkju biðjið

lika um, að herbergið ykkar verði helgidómur,

þangað munu englarnir rata með jólagjafir frá

himninum, frið og bjarta gleði.

Simeon kom heim og það var eins og her-

bergið hans hefði atdrei verið svo bjart, þar var

bjartara en í uppljómuðum höllum. En samt

var þessi birta ekkert í samanburði við birtuna,

sem skein á móti honum frá priðja herberginu,

frá herberginu, sem honum var búið á himnum.

Nú gat hann dáið, af þvi að hann var svo

glaður. Gleðin og dauðinn voru í sambandi

hvort við annað hjá honum. Hann var búinn

að sjá hið fegursta, sem hægt er að sjá hjer á

jörðu. Augu hans höíðu sjeð hjálpræðið og Ijósið.

Nú var hann algjörlega undir himininn búinn

og með friðarbrosi bað hann kvöldbæn sina:

»Nú lætur þú, herra, þjón þinn í friði fara«.

Svo fyltist herbergið af jólaenglum og hólpin

sál   hans   hlustaði   á   lofsöng    hinna   himnesku

hersveita, þjónninn gekk inn til fagnaðar herra

síns. Næsta morgun komu nágrannarnir inn i

herbergi gamla mannsins. Þá var hann dáinn.

Bros var á hinni fölu ásjónu. Fólk sagði: »Síme-

on gamli hefur farið hjeðan í friði«.

Sú kemur stund, að þú átt að fara úr her-

bergi þínu og þú færð ekki framar að koma i

kirkjuna, herbergi Guðs hjer á jörðu. Engill

dauðans kemur og þá ált þú ekki að hræðast

myrkrið, þá ált þú að taka þjer bústað í þriðja

herberginu. Gott átt þú, ef þú ge.tur beðið sömu

kvöldbæn og Simeon. Þá fyllist einnig herbergið

þitt af jólaenglum og þú heyrir hann, sem fædd-

ist á jólunum tala þannig við þig: »Hjarta þilt

skelfist ekki nje hræðist, trúðu á Guð og trúðu á

mig. I húsi föður míns eru mörg híbýli og jeg

hefi búið þjer þar stað«. Það hlýtur að vera

fagurt herbergi, sem hann hefur búið vinum

sínum. Þar allir dagar eru jól. Þar er jólatrjeð

í hinum himneska sal, lífsins trje í Paradís. Þar

eru jól haldin af öllum þeim, sem i hinum

jarðnesku herbergjum tóku barnið Jesúm i fang

sjer   og   hjeldu   þegar   hjer i heimi himnesk jól.

Bj. J.

Legg út á djúpið.

2. jan.  1917.

Legg þú á djúpið, þú sem enn ert ungur

Og æðrast ei, þótt straumur lífs sje þungur,

En set þjer snemma háleitt mark og mið.

Haf guðsorð fyrir leiðarstein í slafni

Og stýrðu síðan beint í Jesú nafni

Á himins hlið!

Nú rennur hið nýja ár 1917 upp og 2. jan-

úar er K. F. U. M. orðið 18 ára. — Það er

talsverður aldur. — Lítum á 18 ára pilt, hversu

veglegur er þroski hans. Hann er kominn yflr

æskuár sín og barnasjúkdóma. Hann hefur lifað

unglingsár sin, hin órólegu grundvallandi ár æfi

sinnar. Og nú nálgast hann manndómsárin og

er orðinn hálfmyndugur maður.

Og svo er K. F. U. M. orðið 18 ára. Bernsku-

árin eru liðin, með veikleika og fálmi þeirra.

Og samt fyllir minningin um hin fyrstu ár mig

með hinni björtustu gleði. — 2. jan. 1899 höfðu

nýfermdir  unglingar hug i sjer að stofna þenna

					
Fela smįmyndir
Kįpa I
Kįpa I
Kįpa II
Kįpa II
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Kįpa III
Kįpa III
Kįpa IV
Kįpa IV