JÓLAKVEÐJA FRÁ K. F. U. M. ekki til þess að finna að því, sem þar fór fram. Hann kom að tillaðan andans og sú kirkjuganga bar ávöxt. Nú rann upp hin þráða stund. Það var komið inn með barnið Jesúm. Þá hljómaði lofsöngur af vörum gamla mannsins. Nú voru komin sælurik jól. Þú ratar úr herbergi þínu í annað herbergí, i kirkjuna. Þú ert búinn að koma þangað oft. Þjer þykir vænt um þann stað. Þú ert oft bú- inn að syngja: »Hingað að snúa, hjer inni að búa, hagsæld er mest«. Þú hlakkar til að kom- ast í kirkju á jólunum. Þú manst eptir fyrir- heitinu, sem þjer hefur verið gefið. Hin þráða stund getur runnið upp nú á jólunum. Hvað eru jólin? Hvað eru jólaguðsþjónustur? Heilög augnablik, þegar komið er inn með barnið Jesúm. Þegar þú heyrir jólaguðspjallið, þá fagnar þú slíkum augnablikum, þegar þú syngur jólasálm- ana, þá býður þú barnið Jesúm velkomið. Þá eru jólin komin inn í þina sál. Þá fyllist hjarta þitt fögnuði og þú átt þá sönnu jólagleði, gleði heimsins er ekkert í samanburði við þá gleði. »En ekki kemst jeg í kirkju á jólunum. Jeg er bundinn við herbergi mittw. Þannig mæla ýmsir, bæði eldri og yngri, nú á jólunum. Heilsuleysi og ýmsir erfiðleikar banna þeim að fara. En Droltinn man eftir þjer; og þegar jeg syng:» Hvert fátækt hreysi höll nú er, því Guð er sjálfur gestur hjer«, þá skal jeg með bæn minni minnast þeirra, sem ekki komast í kirkju á jólunum; þið sem ekki komist í kirkju biðjið lika um, að herbergið ykkar verði helgidómur, þangað munu englarnir rata með jólagjafir frá himninum, frið og bjarta gleði. Simeon kom heim og það var eins og her- bergið hans hefði atdrei verið svo bjart, þar var bjartara en í uppljómuðum höllum. En samt var þessi birta ekkert í samanburði við birtuna, sem skein á móti honum frá priðja herberginu, frá herberginu, sem honum var búið á himnum. Nú gat hann dáið, af þvi að hann var svo glaður. Gleðin og dauðinn voru í sambandi hvort við annað hjá honum. Hann var búinn að sjá hið fegursta, sem hægt er að sjá hjer á jörðu. Augu hans höíðu sjeð hjálpræðið og Ijósið. Nú var hann algjörlega undir himininn búinn og með friðarbrosi bað hann kvöldbæn sina: »Nú lætur þú, herra, þjón þinn í friði fara«. Svo fyltist herbergið af jólaenglum og hólpin sál hans hlustaði á lofsöng hinna himnesku hersveita, þjónninn gekk inn til fagnaðar herra síns. Næsta morgun komu nágrannarnir inn i herbergi gamla mannsins. Þá var hann dáinn. Bros var á hinni fölu ásjónu. Fólk sagði: »Síme- on gamli hefur farið hjeðan í friði«. Sú kemur stund, að þú átt að fara úr her- bergi þínu og þú færð ekki framar að koma i kirkjuna, herbergi Guðs hjer á jörðu. Engill dauðans kemur og þá ált þú ekki að hræðast myrkrið, þá ált þú að taka þjer bústað í þriðja herberginu. Gott átt þú, ef þú ge.tur beðið sömu kvöldbæn og Simeon. Þá fyllist einnig herbergið þitt af jólaenglum og þú heyrir hann, sem fædd- ist á jólunum tala þannig við þig: »Hjarta þilt skelfist ekki nje hræðist, trúðu á Guð og trúðu á mig. I húsi föður míns eru mörg híbýli og jeg hefi búið þjer þar stað«. Það hlýtur að vera fagurt herbergi, sem hann hefur búið vinum sínum. Þar allir dagar eru jól. Þar er jólatrjeð í hinum himneska sal, lífsins trje í Paradís. Þar eru jól haldin af öllum þeim, sem i hinum jarðnesku herbergjum tóku barnið Jesúm i fang sjer og hjeldu þegar hjer i heimi himnesk jól. Bj. J. Legg út á djúpið. 2. jan. 1917. Legg þú á djúpið, þú sem enn ert ungur Og æðrast ei, þótt straumur lífs sje þungur, En set þjer snemma háleitt mark og mið. Haf guðsorð fyrir leiðarstein í slafni Og stýrðu síðan beint í Jesú nafni Á himins hlið! Nú rennur hið nýja ár 1917 upp og 2. jan- úar er K. F. U. M. orðið 18 ára. Það er talsverður aldur. Lítum á 18 ára pilt, hversu veglegur er þroski hans. Hann er kominn yflr æskuár sín og barnasjúkdóma. Hann hefur lifað unglingsár sin, hin órólegu grundvallandi ár æfi sinnar. Og nú nálgast hann manndómsárin og er orðinn hálfmyndugur maður. Og svo er K. F. U. M. orðið 18 ára. Bernsku- árin eru liðin, með veikleika og fálmi þeirra. Og samt fyllir minningin um hin fyrstu ár mig með hinni björtustu gleði. 2. jan. 1899 höfðu nýfermdir unglingar hug i sjer að stofna þenna