L E I F T U R 29 Fariö lijsí JBorg- á IMýnxixi. Sögn prófastsfrúar Jakobínu H. Sigurgeirsdóttur á Borg, sona hennar, Egils og Þorláks, Hallgríms bónda Níelssonar á Grímsstööum og fleiri. Sunnudaginn 2. ágúst 1908 hafði Einar skáld Hjör- leifsson birt, að hann hefði upplestur í Borgarnesi kl. 5 e. m. Nóttina áður gisti hann á Grímsstöðum á Mýrum. Um hádegisbilið sama dag var prófastsfrúin á Borg uppi á lofti heima hjá sér ásamt þrem stúlkum. Sjá þær þá út um gluggana nokkra menn koma riðandi eftir þjóðveginum. Biðu þeir fyrir neðan bæinn í stefnu til Borgarness. Meðal annara þekkja þær glögglega Hallgrím bónda Níelsson á Grímsstöðum á Bleik sín- um. Fór hann sem snöggvast af baki rétt hjá kirkju- horninu. En kirkjan á Borg stendur beint niður undan íveruhúsinu þar, og liggur þjóðvegurinn meðfram austurgafli hennar. Þær fóru svo að tala um, að þarna í för myndi vera Einar skáld Hjörleifsson á leið til Borgarness á upp- lesturinn. Skildu þær ekkert i þvi, hve tímanlega hann væri á ferðinni. Þeir Egill og Þorlákur, synir Einars prófasts Friðgeirssonar á Borg, sátu þá niðri í stofunni. Frúin gekk þá niður til sona sinna og spurði þá, hvað þeir hefðu þekt af fólkinu, sem fram hjá reið. Þeir sögðu að Einar Hjörleifsson væri þar á ferð og fólk á upplesturinn. Hefði það verið Hallgrímur í Grímsstöð- um á Bleik sinum, er farið hefði af baki hjá kirkjunni. Það voru 6 menn er sáu þetta. Frá þeim og til þess staðar, sem Hallgrimur fór af baki, eru um 32 metrar. Veður var bjart og þvi gott skygni. Þeir sáu allir þegar hópurinn reið áfram og hvarf niður af leiti skamt norðan við túnið. Bétt á eftir kom Bjarnþór bóndi Bjarnason neðan úr Borgarnesi. Hann var þegar spurður, hyerjir hefðu verið í fylgd með þeim Hallgrimi á Grímsstöðum og