L E I F T U R 31 Sýn og heyrn. Hvað ert þi\ að g-ei-a hér?" Sögn Pórdísar Guðmundsdóttur á Ytra-Rauðamel. Fyrir nærfelt 20 árum bar þá sýn fyrir mig í vöku, að eg sá Ólöfu dóttur mína. Hún var þá ung, en í sýninni virtist mér hún fulltíða stúlka. Stóð hún i húsi, sem eg kannaðist ekkert við. Með hliðvegg hússins var raðað mörgum tunnum, og var Ölöf eitthvað að bogra við þær. Kom þá maður inn, sem eg þekti jafnskjótt að var Gestur Guðmundsson, þá ungur, en sýndist nú lulltiða." Gekk hann með hægð að hlið Ólafar, tók utan um hana og sagði með hægð: »Hvað ert þú að gera hér?« Nálægt 12 árum síðar giftist Ólöf þessum sama manni, og í'óru þau að búa, en ekki sá eg þetta hús, er eg sá í sýninni. Vorið 1913, þegar þau höfðu verið yfir G ár í hjónabandi, fluttust þau búferlum úr Álfta- neshreppi í Mýrasyslu að Ytra-Rauðamel í Hnappadals- sýslu. Þar er limburhús. .Tafnskjótt og eg kom þar í búrið, fanst mér sem eg hefði komið þar áður. Mér virtist eg kannast svo vel við stærðina og svo tunnurn- ar, sem stóðu þar fram með hliðinni. En þá kannaðist eg alt í einu við að þetta var sama húsið og fyrir mig bar í sýn fyrir nærfelt 20 árum.