32 L E I F T U R Sjónhvarf. Moldarhrúgan. Sögn Guðnýjar húsfreyju Níelsdóttur á Valshamri. Henni sagði móðir hennar, Sigríður Sveinsdóttir prests Níelssonar. En Sig- ríði sagði fóstra hennar og móðursystir, Kristrún Jónsdóttir prests á Grenjaðarstað, fremur en Hildur systir Kristrúnar. Það mun hafa verið í tið þeirra sj'stra, að hjón átti að gefa saman á Grenjaðarstað. Tvær konur sátu þar í stofu ásamt brúðurinni, sem þær höfðu nýskautað. Brúðurin sat í miðið. Þá kom merkiskona inn til þeirra, er Þorbjörg hét. Hún gekk til kvennanna og heilsaði þeim, en fór fram hjá brúðurinni. Rétt á eftir spyr önnur konan Þorbjörgu, með leynd, hvers vegna hún hafi eigi heilsað brúðurinni um leið og þeim. »Eg sá ekki nema ykkur tvær«. »Hún sat þó á millum okkar«. »Þar sá eg ekkert nema dálitla moldarhrúgu, en þegar eg leit síðar við, sá eg brúðurina, og heilsaði henni þá. Mánuði síðar dó unga konan. Cjruðný Jónsdóttir hverfur raóður sinni. Sögn Guðnýjar húsfreyju Níelsdóttur á Valshamri. Jón prestur Jónsson og Þorgerður Runólfsdóttir á Grenjaðarstað voru foreldrar Guðnýjar, er giftist Sveini presti Níelssyni, Kristrúnar, er giftist Hallgrími presti Jónssyni á Hólmum, og Hildar Johnsen í Húsavik, síðar i Kaupmannahöfn. Sumarið 1835 bar svo við, að þær systur voru allar staddar á Grenjaðarstað hjá foreldrum sinum. Eitt sinn voru þær á göngu úti á túni. Þorgerður stóð á hlaði, og horfði á dætur sínar. Sá hún þá alt i einu, að sú,