KIRKJUBLAÐ 1. árg. I Miðvikudaginn 1. nóv. 1933. 1. tbl. Kirkjublað. Á tveim síðustu aðalfundum Prestafélagsins og deildafundum hafa komið fram eindregnar óskir um þaJð, að kirkjublað verði gefið út. Var stefna blaðsins mörk- uð svo á aðalfundinum 1932, að það skyldi fyrst og fremst vera uppbyggilegs eðlis, forðast triifræðilegar flokkadeil- ur, en flytja greinar fræðandi og vekjandi um andleg mál og fregnir um störf presta og safnaða landsins og um hið merkasta, er gerist í þeim efnum erlendis. Á fundi þessum var kosin nefnd til að vinna að undirbúningi útgáfunnar og væntanlegri ídbreiðshi blaðsins, og skipa þeir nú nefnd- ina séra Bjarni Jónssonprófastur í Reykjavík, séra Eiríkur Albertsson prófastur á Hesti, séra Eirikur Brynjólfsson á Útskálum, séra Friðrik Rafnar á Akureyri, séra Guðbrand- ur Björnsson í Viðvík, séra Halldór Kolbeins á Stað í Súg- andafirði, séra Hálfdán Helgason á Mosfelli, séra Jakob Jónsson á Nesi í Norðfirði, séra Óskar Þorláksson á Kirkju- bæjarklaustri, séra Sigurður Stefánsson á Möðruvöllum, séra Sigurgeir Sigurðsson prófastur á ísafirði og séra Sveinbjörn Högnason á Breiðabólsstað. Við undirritaðir höfum svo eftir beiðni nefndarinnar tekið að okkur að sjá um útgáfu blaðsins, og höfum við í samráði við stjórn Prestafélagsins ráðið séra Knút Arngrímsson til þess að annast ritstjórn þess og afgreiðslu þar sem enginn okkar gat bætt ritstjórninni ofan á þau störf, sem fyrir eru. Við höfum valið-blaðinu heitið KIRKJUBLAÐ, i því trausti, að það megi verða í raun og veru málgagn kirkj- unnar hér á lundi og styrki starf hennar með því að flytja