2 KIRKJUBLAÐ á þennan hátt boöskap hennar til heimilanna, þann boðskap, sem við vitum einan þess megnugan að efla og vernda trú og siðgæði þjóðarinnar og gefa henni þrótt til að sigrast á erfiðleikunum, sem hún á vvð að stríða. Ef til vill kann einhverjmn að finnast blaðið í heldur fátæklegum búningi, en ekki teljum við að því; svo eru einnig flestar islenzku kirkjurnar. Hitt er okkur aðalatriði, að það, er blaðið hefir að flytja, eigi sem mest og bezt erindi til allra, og að eng- um verði ókleyft að eignast það, ef hann á annað borð lang- ar til þess. Viljum við óska þessu blaði hins sama og Þór- hallur Bjarnason Kirkjublaðinu" fyrir rúmum íO árum, að það verði blað fyrir íslenzka alþýðu og góður heimilis- vinur á hverju heimili. En til þess að blaðið nái tilgangi sínum, þurfa góðir menn um land allt, prestar og leikmenn, að leggja því sem bezt lið bæði í orði og verki, og biðjum við Guð að gefa, að svo verði. Með bæn til hans hefur þetta Kirkjublað göngu sína. Árni Sigurðsson. Ásmundur Guðmundsson. Friðrik Hallgrímsson. Minning Lúthers í tilefni af hálfrar fimmtu aldar afmæli hans. í þessutn mánuði (10. nóv.) eru liðin 450 ár, siðan Marteinn Lúther fæddist í þennan heirn. Þykir því við eiga, að þessa sé niinnzt lítilsháttar í þessu nýja Kirkjublaði, er hér hefur göngu sína. Má hiklaust gera ráð fýrir, a.ð hið sama verði gert víðsvegar um kristinn heim mótmæl- enda trúar, enda þótt ekki verði efnt til sérstakra minn- ingar-hátíðahalda, svo lítt fallnir til þess sem nálægir tímar eru, með allri þeirri ólgu, sem nú ríkir i þjóðadjúpinu, og með öllum þeim erfiðleikum, sem menn eiga nú við að stríða um allan hinn siðmenntaða heim. En allt að einu