Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Kirkjublaš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Kirkjublaš

						KIRKJUBLAÐ

Þessu hefir fylgismönnum Lúthers á öllum tímum hætt til

að gleyma og með því hafa þeir einatt unnið kenningu

hans margvislegt tjón. Heilsteypt kenningarkerfi hefir Lút-

her aldrei eftir sig látið, og því hafa menn einatt tekið

hann »sér til inntektar«, þar sem sízt skyldi, t. d. með því

að vilja binda sig og aðra við hitt og þetta, sém hrotið

hefir úr penna hans við ýmis tækifæri, þótt ekki skifti

neinu verulegu máli fyrir heildarskoðun hans og Lúther

sjálfur hefir sízt ætlazt til, að menn bindu sig við.

Hvað er það þá, sem veldur því, að Lúther hefir orð-

ið sá öndvegishöldur þeirra alda, sem liðnar eru frá því,

er hann var uppi, sem öllum kemur saman um, að hann

geti með réttu talizt?

Ekki sem lærdómsmaður, ekki heldur sem rithöfundur

hefir Lúther velli haldið fram á þennan dag, heldur fyrst

og fremst sem spámaður í þessa orðs réttu merkingu.

Spámannlegt eðli hans er ráðningin á leyndardómi per-

sónuleika hans. Því að hér er um leyndardóm að ræða. Við

það hljóta allir að kannast, sem kynnast Lúther eins og hann

birtist ekki aðeins í athafnarlífi sínu, heldur einnig í ritum

sínum. Hann er ekki eins og fólk flest. Þetta hafa jafnvel

svæsnustu óvinir hans orðið að kannast við. Og sumir

hafa þá líka gripið til þess óyndisúrræðis, að vilja ráða

leyndardóm persónuleika hans með því að bera honum á

brýn, að hann »hefði illan anda«. Þannig kemst Grisar

kristmunkur að þeirri niðurstöðu um Lúther, í miklu þriggja

binda riti um hann, að hann hafi verið »villuandi afvega-

leiddur af djöflinum, heiminum og holdi sínu«. Og þó er

Lúther það mikilmenni andans í augum þessa stórlærða

mótstöðumanns síns, að hann neyðist til að bera hann

saman við hina viðurkenndu kennifeður kirkju sinnar!

Annan mælikvarða kemur honum aldrei til hugar að leggja

é. Lúther! En jafnvel ekki sá mælikvarði hefir nægt hér.

Leyndardómur persónuleika Lúthers hefir reynzt of djúpur

eða of hár. Andstæðurnar í skapgerð hans eru þá líka

«inatt svo átakanlegar, að undrum sætir. »Hann er hvort-

tveggja  í  senn,  draumlífur spekingur og skörungur til at-

					
Fela smįmyndir
Titilblaš
Titilblaš
Efnisyfirlit
Efnisyfirlit
Kįpa I
Kįpa I
Kįpa II
Kįpa II
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Kįpa III
Kįpa III
Kįpa IV
Kįpa IV