Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Kirkjublaš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Kirkjublaš

						KIRKJUBLAÐ

hafna,« hefir skáldið Heine sagt um hann. »Hugsanir hans

voru ekki aðeins búnar vængjum, heldur einnig höndum.

Orð og athafnir héldust í hendur hjá honum. Hann var

ekki aðeins tunga, heldur og sverð aldar sinnar. Hann var

hvorttveggja í senn kaldrænn háspekingur og spámaður

fullur guðmóðs og andagiftar. . . . Oft er hann ólmur eins

og ofviðrið, sem rífur eikur upp með rótum, og svo aftur

blíður sem blær, er leikur um litskreyttar fjólur. Hann var

gagntekinn af geigursfullum guðsótta, fullur sjálfsafneitunar

heilögum guði til dýrðar, en bar þó hinsvegar glöggvasta

skyn á dýrðir jarðar vorrar og kunni að meta þær. . . . í

honum bjó eitthvað frumlegt, óskiljanlegt, undursamlegt,

eins og á sér stað um alla þá menn, er virðast reka er-

indi forsjónarinnar.« Með þessu er Lúther í mörgu tillitt

rétt lýst. Hann á í öllu þessu sammerkt við hina miklu

spámenn í ísrael. Þeim er hann líkastur í eldmóði anda

síns, djúpsýni hugsunarinnar, einbeittni viljans, djörfung

sinni og guðsótta. Lúther óttaðist guð og ekkert annað.

Yfir alla hluti fram mat hann vissuna um að vera

handhafi náðar Guðs. í augum hans var þetta fylling þess,

sem oss er gefið dýrlegast i kristindóminum: »Þar sem

fyrirgefning syndanna er, þar er lífið og sáluhjálpin.« Á

vissunni um Guðs náð grundvallaðist afburðamennska Lút-

hers fyrst og fremst. Þessi vissa læsir sig um állt líf hans

og gervallan persónuleika hans. í þeirri vissu prédikaði

hann og söng sálma sína. í henni gekk hann út í baráttu

sína gegn páfanum og öllu veraldarvaldi. í henni gladdist

hann með eiginkonu og börnum á heimili sínu. Stórskor-

inn var hann einatt í framkomu sinni, hversdagslegur í

orðum og óttalegur í reiði sinni. Sterkyrði og stóryrði

voru honum eiginleg, en þau stóðu í nánu sambandi við

ákaflyndi hans, en jafnframt við aldarhátt þeirra tíma. En

á hinn bóginn var hann viðkvæmur, ástúðlegur og gaman-

samur, þegar því var að skifta, — maður, sem hafði lært

þá list, að »gráta með grátendum og fagna með fagnend-

um«. En öllu öðru fremur er Lúther sá hinn skapandi spá-

mannlegi andi, sem litið verður upp til um ókomnar aldir

					
Fela smįmyndir
Titilblaš
Titilblaš
Efnisyfirlit
Efnisyfirlit
Kįpa I
Kįpa I
Kįpa II
Kįpa II
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Kįpa III
Kįpa III
Kįpa IV
Kįpa IV