Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Kirkjublaš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Kirkjublaš

						:8       ____________KIRK JUBLAÐ_________________

að þetta fyrirheiti hans hefði ræzt á þeim. Þeir voru sann-

færðir um, að þeir nytu guðlegrar aðstoðar í starfi sínu og

í öllu lífi sínu. Þeir áttu trúargleði og guðstraust, sem

knúði þá til að boða fagnaðarerindi Krists með fögnuði

og djörfung. Þeim var gefinn dásamlegur kærleikskraftur

til fórnar og þjónustu og þrek til að láta ekkert hræða

sig frá að fylgja sannfæringu sinni. Allt voru þetta, að

þeirra dómi, gjafir frá hæðum, guðdómlegur máttur, sem

þeir áttu Kristi að þakka.

Frá öllu þessu skýrir Postulasagan allítarlega. En ekki

kemur þessi sannfæring um kraftinn frá hæðum síður fram

í öðrum ritum Nýja-testamentisins. Er þar ýmist talað um

hann sem kraft Guðs eða Krists eða kraft heilags anda.

Skulu hér aðeins tilgreind orð Páls postula, þar sem hann

segir, að fagnaðarerindið sé kraftur Guðs til hjálprœðis

hverjum þeim, er trúir. En Páll leggur áherzlu á, að trúar-

kraftur kristinna manna sé frá Guði, og hann-talar mikið

um siðgæðismátt kristindómsins og eígnar náðargáfurnar

áhrifum að ofan.

Þessi sami kraftur hefir ávalt birzt í lífi kristinna

manna á öllum tímum. Um það ber kristnisagan vott.

Vegna þessa kraftar gat blóð píslarvottanna orðið útsæði

kirkjunnar. Vitni um þennan kraft bera æfisögur þeirra

kristinna manna, sem mestu góðu komu til leiðar. Hver

sá, er les eða heyrir um lif og starf beztu manna kirkj-

unnar um liðnar aldir, hlýtur að dást að þeim mætti, er

birtist í trú þeirra og kærleiksþjónustu. Svo fer Matthíasi,

er hann hugsar til Hallgríms Péturssonar og talar um þrek

hans og »trúar-sókn í miðjum deyð«, nefnir hann dýrðleg-

an mann og líkir honum við Davíð konung, við þjóðmær-

ing, »er háan hróður fann, hetju ljóss, er tíu-þúsund vann«.

Sagan segir oss frá mörgum kristnum mikilmennum, en þó

munu hinir miklu fleiri, sem öðlast hafa kraftinn frá hæð-

um, en lifað kyrlátu kærleikslífi, án þess að saga þeirra

væri skráð.

Sagan sýnir og sannar, að réttmætt sé að tala um

kraft,  er kristna trúin geti veitt mönnum.   En sagan sýnir

					
Fela smįmyndir
Titilblaš
Titilblaš
Efnisyfirlit
Efnisyfirlit
Kįpa I
Kįpa I
Kįpa II
Kįpa II
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Kįpa III
Kįpa III
Kįpa IV
Kįpa IV