breiður og mjór. Þú ert á öðrum þeirra. En á hverjum ? Menn deyja á tvennan hátt í drottni eða í syndum sínum. Þú verður að gjöra annaðhvort. Hvað velur þú? Kraptur bænarinnar. Gamall prjedikari sagði: Sterk er jörðin, sterkt er haflð, sterkur er stormurinn, sterkur er eldur- inn en sterkari er bænin. Því að þegar Móses bað, opnaðist jörðin og hafið klofnaði, þegar Jesús bað, hægði storminn og þegar þrír menn báðu í eldsommum, sakaði ekki eldurinn. Lýður drottins vinnur sigur á öllum öflum myrkranna með bæn. Bæn styrkir trúna, glæðir kærleikann. Bæn trúarinnar hefur margopt læknað veika, veitt sárþreyttum nýjan krapt, bágstöddum hjálp í tíma, hún styður prjedikarann, er bak- hjallur trúboðanna og öruggasti grundvöllur líknar- verka. Vjer getum reynt daglega að drottinn er guð máttarins. Hann gefur fram yflr það, sem við biðjum og skynjum. Biðjið, hrópar drottinn til allra fátæklinga, sorgmæddra, istöðulitilla, þunglyndra, sjúklinga, og fanga. Neyðin og þrauthnar mundu hopa á hæl, ef menn sinntu því. Leitið, segir drottinn við alla þá, sem hafa glatað einhverju. Margt er glatað, gsefa, frjður, ár, synir, 4?9tur, Sá, sem leitar