14 dæma, en það er orð drottins, já, meira að segja bæn hans. Ef jeg elskaði þig ekki sem dýrkeypta sál, þá mundi jeg vissulega ekki vera að tala um þessi efni við þig; því það er engin skemtun að tala um það, sem öðrum er óþægilegt að heyra. En guðs orð og samvizkan banna hverjum kristnum manni að þegja um þetta efni. Að því er gömlu orðin snertir: Hver verður sæll við sína trú," þá eru þau einhver hin mesta lygi, sem lyginnar faðir hefur blásið syndurunum í brjóst. Biblian kannast minnsta kosti ekki við nema eina trú: endurfæð- ingu og rjettlætingu; guðs börn um allan heim þekkja heldur ekki neina aðra, og það er þessi lif- andi trú á Jesúm Krist, sem frelsar frá djöflinum, syndinni og dauðanum, er hefur ætíð aðskilið guðs börn frá börnum heimsins; heimsins börn hafa jafn margbreytta trú" og þau eru sjáif mörg, þó það sjeu vitanlega allt greinar á rotnum stofni vantrúarinnar. Það er sagt hjer að framan, að faðir vor" á- felli hvern þann mann, sem ekki hefur tekið sinna- skipti, eins og nú skal sýnt. Hugsaðu þjer mann, sem aldrei hefur grátið yflr syndum sínum, aldrei reynt i fullri alvöru að verða guðs barn, og því síð- ur er það, en fyrirlitur ef til vill kenningu ritning- arinnar um apturhvarf og trú, og forðast þá, sem hafa snúið sjer. eins og þeir væru afhrak manna, hugsaðu þjer þegar þessi maður segir: faðir vor", hvort heldur sem hann situr í kirkjunni, krýpur inn við altarið, stendui- i kóidyrum som moðhjálp- ari, stendur í prjedikunarstól, eða hvar annarstaðar