Öö að maður, sem áður var syndaþræll, ókunnugur guði og sénri baki að riki guðs og böraum hans, er nú farinn að hat.a það, sem guð hatar, og elska það, sem guð elskar, og þar sem hann áður las faðir vor" í hugsunarleysi, sjer hann nú að það er einmitt hænin hans, sem tekur fram allar óskir hans og þarflr. Hann hugsar um það fyrst og síð- ast að vera ávallt barn guðs, og því andvarpar hann opt: Er jegguðsbarn? Faðir minn, májeg vera barnið þitt, jeg sem er svo veikur, óstöðugur og syndugur. 0, drottinn varðveit mig allt til enda. Svo biður hann: Hjálpa mjer, himneski faðir, að jeg megi helga nafn þitt í öllu mínu framferði, í hugsunum, orðum og verkum, til þess að aug- ljóst verði að þú ert heilagur, sem hefur kallað mig þitt barn. Varðveit mig frá því að verða nokkrum manni til ásteitingar eða hneykslunar. Ó, að guðs ríki mætti eflast og aukast í hjarta mínu, svo að trúin, kærleikurinn og auðmýktin yrði meiri. Ó, að allir menn yrðu guðs börn og góðir þegnar í ríki hans. Qóði guð, hjálpa mjer til að gjöra þinn vilja, og styrk mig svo jeg geti daglega gefið þjer allan vilja minn, og varðveit mig frá áhyggjum heimsins barna fyrir daglegu brauði og hverju öðru. Fyrirgef mjer af þinni miklu miskun, jeg hef verið vanrækinn, hrasað aptur, já syndgað móti þjer, ó, fyrivgeí mjer, og hjálpa mjer til að vera fús á að fyrirgefa breizkum moðbræðrum mínum. Veit mjer hjálp í freistin^iim, svo að jeg falli ekki. Varðveit mig frá öllu illu, sem kemur frá djöílin-