Kosningablaðið - 20.10.1916, Blaðsíða 1

Kosningablaðið - 20.10.1916, Blaðsíða 1
§te KOSNINGABLAÐIÐ. JUþgðuflokkurinn. Utanríkis- mál. ***** Flokkurinn vill hafa vakandi auga á því, að eigi sé byrjað aftur á hinu árangurslausa samningaþjarki við Dani, sem í mörg ár hefir glapið alþýðunni svo sýn, að hún hefur eigi gætt þess að full- trúar þeir, er hún hefur kosið, em- bættismenn og kaupmenn, lögðu skattabyrðarnar á herðar þeim fá- tækustu, verkamönnum, en gengu sjálfir sem næst lausir. Skatta- mál. V Flokkurinn vill fyrst og fremst koma í veg fyrir það hróplega ranglæti, sem nú á sér stað, að þeir fátækustu, sem ala upp borg- ara handa þjóðfjelaginu, svo þeir eiga ekkert aflögu, borgi skatta í landssjóð. í stað óbeinu skattanna komi tekju- skattur og verðhækkunarskattur. Laitdsverzlun og framleiðsla. Auk verðhækk- unar- og tekju- skattsins, sem al þýðuflokkur- inn ætlast til að komi í stað hinna óréttlátu tolla, viil flokkurinn að landið taki einkasölu á kolum og steinolíu. Einnig á landið að sjálf- sögðu að reka útgerð og græða á Jjví. Tvent er fengið með landverzlun, ódýrari vara og peningar i lands- sjóðinn. Lands- bankinn. Ef sólin alt í einu hætti að skína, myndi alt líf deyja á jörðinni. þjóðmálaflokkarnir eru nú búnir að byrgja sig fyrir sólinni og sitja í svarta myrkri. Blöðin hrópa úr myrkrinu: »Kjóstu þennan«, »kjóstu þennanl* og ætlast til að kjósend- ur gegni þeim af gömlum vana, og kjósi blindandi. Enginn veit hvað gömlu flokkarnir — og bænda- flokkarnir að nokkru leiti — ætla að gera, þegar á þingið kemur. Aðeins einn flokkur er hér und- anskilinn, Alþýðuflokkurinn (verka- menn). Hann er kominn út í dags- Ijósið, sólin skín á hann, og hann lætur alla heyra, hvað hann vill berjast fyrir. Alþýðuflokkurinn hefur birt stefnu- skrá sína í Dagsbrún 4. júní s. I. Ekki er rúm hér til að ræða hana alla, en minst verður á aðalatriðin. Fjármálaþekking embættis- og menta- mannanna hefur bor- ið þá svo ofurliði, að þeir seldu seðlaútgáfuréttinn er- lendum auðkýfingum í 30 ár, eða til ársins 1935, og græða auðkýf- ingarnir of fjár árlega, fé sem að réttu á að renna í landssjóðinn. Til þess að vefta fjárstraumnum í rétta átt, vill flokkurinn auka og efla Landsbankann. Samvinnu- rnál******* Samgöngur. Sjávarútvegs- ***** mdi. ***** Grautfúnir dall- ar eru nú settir á sjóinn í tuga- tali, til að svala auragirnd útgerðarmanna og fjöldi atgjörvismanna drukna árlega fyrir eftirlitsleysi. Harmandi ekkjur og fátækleg börn hrópa neyðarópum til alþýðunnar, að taka í taumana á þessari svívirðingu. Löggjafarnir gömlu heyra ekki ópin, til þess standa þeir of fjarri alþýðunni, en Alþýðuflokkurinn heyrir þau, og hann vill berjast fyrir nákvæmu eftirliti með útbúnaði bátaogskipa. Einnig fyrir því að sett sé á stofn veðurathugunarstofa, sem getur nú, þegar síminn er kominn víða um land, séð fyrir um manndrápsveð- ur og varað menn við þeim. Bætur þær, sem sjómannsekkjan fær fyrir manninn sinn, eru nú svo auðvirðilega lágar, að svo búið má ekki lengur standa. Svona ó að kjósa. Kjósandi fær kjörseðil, hjá kjörstjórninni, og lítur hann þannig út: Erlingur Friðjónsson. Samvinnumálin vill flokkurinn styðja í baráttunni við kaup- mannavaldið, bæði með hentugri löggjöf, og ríflegum fjárveitingum til að útbreiða þekk- ingu á þeim. Eflaust mætti mikið bæta úr vetrarvinnuleysinu með framleiðslu- félögum eftir samvinnusniði. Magnús J. Kristjánsson. Sigurður Einarsson. Samgöngunum er einungis hægt áð koma í lag með miklum kostnaði. Pað fé fæst með því að taka peningana hjá þeim sem ekki dregur um að borga skatta, en ekki áf fátæklingunum, eins og nú er gjört. Alþýðuflokkurinn mun berjast á móti þeirri hugmynd heimastjórn- armanna, að járnbraut verði lögð um örlítinn hluta landsins — Suð- urland. Pví svo mikið fé myndi sá spotti kosta, að ekkert yrði eftir til að koma samgöngum hinna lands- hlutanna í viðunandi horf. Kjósandi fer svo með kjörseðilinn inn í kjörherbergið, tekur stimpil, sem þar er, og stimplar yfir hvíta augað, framan við nafti Erlings Frið- jónssonar, og lítur þá seðillinn þannig út: Erlingur Friðjónsson. Magnús |. Kristjánsson. Sigurður Einarsson. Síðan þerrar kjósandi seðilinn, brýtur hann saman, fer með hann fram fyrir til kjörstjórnarinnar, og styngur honum sjálfur niður um rifuna á atkvæðakassalokinu. Varast skal að láta sjá hvað á seðlinum er. Landbúnaðar- mál. ********** Brýn þörf er á að bæta á- búðariöggjöfina, svo kaupgjald lækki ekki um of vegna aðstreymis til kaupstaðanna. Einnig þarf að koma í veg fyrir sölu þjóð- og kirkjujarða, þar eð þjóðin tapar of fjár á því árlega. Alþýðumentun sé bætt að mikl- um mun.

x

Kosningablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kosningablaðið
https://timarit.is/publication/504

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.