Nýjar kvöldvökur - 01.03.1913, Blaðsíða 14

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1913, Blaðsíða 14
62 NYJAR KV0LDV0KUR. Ní-Ní. Söguþáttur frá Algier. Rað er kunnugt, að Frakkar lögðu undir sig land það á norðurströnd Afríku, er Algíer (Alzír) heitir um og eftir 1830. Áttu þeir lengi erfitt með að yfirbuga Berbaþjóðir þær, er þar voru fyrir, og varð þeim einna torsóttastur for- ingi einn, Abd-el-Kader aðnafni; hann var liin mesta hetja og harður í horn að taka. Loksins höfðu þó Frakkar getað krept svo að honum, að harin hörfaði undan inn á land Marokkó- manna; en árið 1843 kom hann aftur; tóku landsmenn honum þá tveim höndum; safnaði hann þá liði og hóf ófrið við Frakka að nýju, og veitti Frökkum erfitt, því að foringjar þeirra voru lélegir, þangað til Lamoriciére tók við herstjórninni. Pað var snemma árið 1846. Abd-el-Kader hafði sett herstöðvar sínar þannig, að fljót var á aðra hönd en ófær for- æði á hina, en hálsar að baki, svo að það var alls ómögulegt að komast að honum óvörum nema með mestu slægð. Aðalliðstyrkur hans var höfðingi einn, Sifar el Kim, foringi Bedú- ínaflokks eins sem var fullur trúarofstækis og hreysti, og fjölmennur mjög; hafði hann her- búðir sínar skamt frá honum í dalsdrægi einu; var áin þur af og stóðu tjöldin í farveginum. Honum hafði nýlega tekist að gera áhlaup á Frakka og tekið höndum tvo foringja, ungan lautinant, er hét le Bourget, og röskan höfuðs- mann, Laroche að nafni, höfðu þeir þá með sér í gislingu, og ráðgerði Sifar el Kim að gera annað áhlaup á Frakka sem fyrst.' Reir félagar fengu að gatiga lausir í her- búðunum, en strangar gætur voru á þeim hafð- ar. Laroche talaði vel tungu landsmanna, ka- býlsku, en hélt þvi leyndu að svo væri. Hann hugsaði altaf um að komast þaðan á flótta. Hann var suðurfranskur, fríður maður sýnum og vel viti borinn, eldheitur tilfinningamaður, og vildi því reyna að stytta stundir fangavist- arinnar með dálitlu ástaæfintýri, ef hægt væri, eins og hermönnum er títt er þeir hafa setu- dvalir. Sifar el Kim átti tólf syni og þrjár dæt- ur með konum sínum, og var Fatime, elzta dóttirin, þá tólf vetra gömul og aðdáanlega falleg, grannvaxin sem gazella, móeygð eins og gíraf og eldheit eins og sólin í landinu hennar. Bedúínameyjar eiga illum örlögum að sæta. Regar þær eru tólf vetra, eru þær seldar ein- hverjum herskáum ribbalda til þess að verða konur þeirra, og verða svo ambáttir þeirra til þess að svala girndum þeirra og bera byrðar þeirra. Fatime vissi það vel, og það líka að konur Ferenga (Norðurálfumanna) eiga miklu betra. Konur þar í landi eru eldfimar, og má því geta nærri að kurteysi Laroche féll þar í góða jörð. Reyndar voru það ekkert nema bendingar, því að konur eru þar mjög lokað- ar inni og ná lítið samtölum við karla. Eini staðurinn, sem hann gat séð hana og náð tali af henni var við brunn einn, sém var utanvið herbúðirnar. Regar hún varð þess vör að hann beindi fagurmælum til hennar, varð hún hvergi hrædd, þegar Laroche talaði fyrst til hennar, og það þó hann mælti á kabýlska tungu. »Sidí (herra),* sagði hún undrandi, »þú talar mína tungu.« »Til þess að gleðja þig, rós fjallanna,« svar- aði hann. Fatime þagði yfir því við ættingja sína, að fanginn skildi kabýlska tungu, því annars hefði honum verið bannað að koma að brunninum. Og það fór svo fyrir Laroche, að hann var búinn að missa hjarta sitt áður en hann vissi af. Þessari ást sinni leyndi hann fyrir le Bo- urget, en geymdi hana samhliða ættjarðarást sinni og sómatilfinningu hermannsins. Svo játaði hann Fatime ást sína með hinum

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.