.12 VÖRÐUR ið. Eg eyði ekki fleiri oröum að þessu nú, en kem að því seinna í þessum greinum, Yfirstandandi timar eru örðugir. Það finnum vér öll sem þetta land byggjum. En einhvern tíma rofar til í þessu matarstríði fyr eða síðar. Heill þeim, sem koma óskadd- aðir á sál og líkama út úr þessari brauðs- og auraorra- hrið, sem nú fer um löndin. Heill hverjum þeim, sem ekki selur meiri eða minni hluta af betri hluta sálar sinn- ar fyrir brauð, eða kol á þessum tímum, og er svo and- legur öreigi með aurasjó'ð lítinn að hjaðningavígunum loknum. (Meira). Tíðindi. Tíðindi mega það teljast, er vikublöð vor eða dagblöS gera barnafræðslu að umtalsefni. Öll hégómamál ganga vanalega fyrir því stórmáli. Þjóðin virðist ekkert hugsa um barnafræðslu, og þing og stjórn hefir engan brennandi áhuga á að láta fræða börn þessarar þjóðar. íslendingum er eitthvað sýnna um að geta börn en ala upp börn. Síra Gísli Skúlason, ritstjóri Þjóðólfs, eyðir i sumar og haust einum 30 dálkum í blaði sínum, til þess að ræða fræðslumál. Þetta er því virðingarverðara og merkilegra, sem fleiri fyrirlíta þetta stórmál þjóðarinnar. Greinin er víðtæk. Höfundur gerir að umtalsefni bæði barnafræðslu, hærri alþýðufræðslu og æðri mentun. Vörður hefði viljað taka upp alla þessa grein, en það getur hann ekki smæðar sinnar vegna.