Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Pįskakvešja frį K.F.U.M.

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Pįskakvešja frį K.F.U.M.

						8

pX

SKAKVEÐJA   FRA   K.   F.   U.   M.

leitt í ljós líf og ódauðleiki. Nú var hátíð lifsins

runnin upp í sálum þeirra.

Við byrjun ferðarinnar kendum vjer í brjósti

um þessa ungu menn, sem voru svo daprir í

bragði. Við lok hennar samgleðjumst vjer þeim

af hjarta. Og þeirra fögnuður er einnig vor fögn-

uður. Þeirra fagnaðarefni einnig vort og allra

kristinna manna.

Því að margir af oss þektu eitthvað lika til

Emmausgöngunnar af eigin reynslu; vjer bjugg-

um yfir harmi, en augu vor voru haldin, og

vjer þektum ekki hinn ósýnilega vin, sem með

oss var í förinni. En svo útlagði hann fyrir oss

ritningarnar og lauk upp hugskoti voru og vjer

þektum hann og eignuðumst hina eilífu páska-

gleði og hjartað fyltist þakklæti og lofgjörð. Og

nú blessum vjer páskasólina, sem enn á ný

minnir oss á hinn dýrlega páskaatburð, grund-

völl trúar vorrar og vonar. Pví nú vitum vjer,

að dauðinn er eigi hið siðasta, heldur lífið. Gröfin

er eigi hið síðasta, heldur himininn. Og í Jesú

nafni óskum vjer hver öðrum gleðilegra páska.

Drottinn er upprisinn og orðin höfðingi lífsins.

Dauðinn er uppsvelgdur í sigur.

En af þessari heilögu frasögu sjáum vjer í

fyrsta lagi, að Jesús er nálœgur viiuun sínum,

öllum þeim sem elska hann og þrá eins og hinir

ungu menn á Emmausgöngunni. Pað verður ekki

sagt að þeir hafi trúað á hann, eins og þá stóðu

sakir. Trú þeirra hafði liðið skipbrot á föstudag-

inn langa. En þeir elskuðu hann og þráðu, og

þessvegna nálgaðist hann þá og slóst í för með

þeim. — Ef trú þín hefir liðið skipbrot á skerj-

um efans og augu þin eru haldin, og þú þekkir

ekki hinn upprisna frelsara þinn, þá vittu samt,

að hann er nálægur þjer og slæst í för með þjer,

ef þú elskar hann og þráir, og saknar samfylgdar

hans. Augu hans hvila á þjer og hann horfir

inn i sál þína dapra í bragði. Og hann kennir í

brjósti um þig. Því þetta er hið annað, sem vjer

lærum af Emmasusfrásögunni, að Jesús aumk-

ast yfir vini sina og tekur þátt í hrygð

þeirra.

Þó að mennirnir ekki þekki og skilji hrygðar-

efni þitt nje taki þátt í þvi, og þú sjert einmana

og dapur í bragði, þá þekkir Jesús það alt og

skilur miklu betur en þii sjálfur, og kennir í

brjósti um þig  og  samhryggist þjer,  svo að þú

ert ekki lengur einn um sorg þína, en Jesús ber

hana með þjer, svo að þjer ljettir.

Því að í þriðja lagi sjáum vjer af harmsögu

hinna ungu manna, sem elskuðu og þráðu Jes-

úm, að hann eyðir harminum, breytir hrygð í

gleði. Og þelta er hið mesta og besta sem hjart-

að þráir. Ríkasta þráin i mannlegu hjarta er

gleðiþráin. Allir leitum vjer gleði. En hvar finn-

um vjer hina hreinu og sönnu, hina varanlegu

gleði? Eg þori óhætt að fullyrða: hvergi nema

hjá Jesú, hinum upprisna, lifandi frelsara. Hjá

honum, og honum einum finnum vjer gleðina

varanlega, friðinn, sem öllum skilningi er æðri.

Segðu mjer, ungi maður, ef þú hefir annarsstaðar

fundið þessar lífsins dýrustu hnossir: hinn sæla

frið og hina varanlegu gleði. Jeg veit að þú hefir

ekki fundið þær, ef þú annars átt þær, annar-

staðar en hjá Jesú. Annarstaðar hafa þær aldrei

fengist.

Og hvernig fór Jesús að eyða harminum í

hjörtum Emmauslærisveinanna og veita hina sæl-

ustu gleði? Hann gerir það með hinum sögulega

vitnisburði, ritningarorðinu, sem hann útleggur

og útskýrir fyrir þeim, svo að þeir skilja það,

sannfærast og trúa. Með alveg nýjum skilningi

líta þeir nú a hin fornhelgu spádómsorð.

Og enn fer hann að á sama hátt. Yfir hið heil-

aga, ritaða guðsorð bíbliunnar varpar hann nýju

Ijósi, svo að vjer skiljum það, hjartað brennur i

oss og vjer sannfærumst og trúum og gleðjumst.

Og svo fullkomnar hann gleðina, er vjer þekkj-

um hann, og hann opinberar oss dýrð sina. Og

þá vaknar hjá oss löngun til að verða boðberar

hans, gera aðra hluttakandi í gleði yorri og svo

samgleðjast þeim af hjarta.

Þekkir þú, vinur, þessa löngun? Förum yjer

nú eins að og Emmasuslærisveinarnir forðum,

er þeir hurfu aitur til að kunngera lærisveinun-

um það, sem svo mjög hafði glatt þeirra eigin

hjörlu? Það eigum vjer að gera. Og það gerum

vjer, er vjer óskum öðrum gleðilegra páska, svo

framarlega sem hugur fylgir máli.

J. P.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8