31 heiSur, ríkidæmi, konur og börn. En frá þaki hallar þinnar sástu konu fátæks manns og syndin fiaug þér í brjóst, og þú tókst konu Úría, en lést hann falla fyrir sverSi Ammonítanna. Þú, ríkur maSur, tókst frá fátæka manninum hans eina lamb, en drapst hann sjálfan. Eg hefi breytt á sama hátt. Minstu líka þá þú iðraSist og sagSir : ,Eg játa afbrot mín. Synd mín er ávalt frammi fyrir mér'. HiS sama hefi eg gjört. Þú getur ekki neitaS mér um inn- göngu". Og röddin innan viS hliSiS þagSi. Þegar syndarinn hafSi beóiS litla stund, fór hann enn aS berja aS dyrum og baS aS lofa sér inn í himnaríki. Og hann heyrSi í þriSja sinn rödd fyrir innan hliSíS segja: Hver er þessi maSur og hvernig eyddi hanu lííi sínu á jörSunni ?" Og i-ödd ákærandans skýi-Si í þriSja sinn frá öllu hinu illa, sem syndarinn hafSi aS- hafst, en nefndi ekki eitt einasta góSverk. Og röddin innan viS hliSiS sagói: ,,Vík héSan burtu ! Syndarar geta ekki komist í ríki himnanna". En syndarinn sagSi: ,,Raustu þína heyri eg, en auglit þitt er mér hulíS, og eigi veit eg nafn þitt". Þá svuraSi röddin : ,,Eg er Jóhannes hinn guSdómlegi, læri- sveinninn, sem Kristur elskaSi heitast".