Gera skal öldruðum kleift að dvelja sem lengst í eigin íbúð" Rætt við Guðmund Hallvarðsson formann Sjómannadagsráðs um framkvæmdir á vegum samtakanna og margháttuð framtíðaráform Það hefur lengi verið venja að Sjómannadagsblaðið inni formann Sjómannadagsráðs eftirpví sem efit er d baugi í starfi samtakanna hverju sinni. Þar hefur jafhan verið afnógu að taka °g svo er nú: Miklar framkvæmdir eru í gangi ogþóttþeim sé ekki öllum lokið er þegar farið að líta tilfleiri og enn stærri markmiða. Verður Ijóst afviðtali okkar hér við Guðmund Hallvarðsson al- þingismann og formann Sjómanna- dagsráðs að brautryðjendaandi Sjó- mannasamtakanna í málefnum aldraðra er jafh lifandi og sívakandi og hann hefur veriðfrá upphafi. »Segja má að flest þau ár sem liðin eru rrá því er bygging Hrafnistu í Reykjavík hófst hafi verið mikil rramkvæmdaár hjá Sjómanndagsráði" segir Guðmundur Hallvarðsson. »Verður ekki annað sagt en svo sé enn, því á síðast ári var hafist handa um að reisa við Hrafnistu í Reykjavík endurhæfingarmiðstöð með sundlaug 1 samvinnu við Reykjavíkurborg. Verkinu miðar vel áfram og við erum að vonast til svo fremi að fjárskort- ur hamli ekki framkvæmdum að þeir fyrstu geti stungið sér til sunds á Sjómannadaginn 1996. Við þessa byggingu eru miklar vonir tengdar, þar sem við erum sannfærðir um það að líkt og gamall maður hérna orðaði það að þetta verði andleg og líkamleg uppspretta heilsu og gleði fyrir gamla fólkið." Endurhæfingarmiðstöðin mun ekki aðeins þjóna Hrafnistu heldur líka íbúum í Norðurbrún 1, þar sem Reykjavíkurborg rekur heimili fyrir aldraða, og hún mun þjóna hjúkrunar- og umönnunarheimilinu Skjóli. Ennfremur öðrum öldruðum íbúum í nágrenninu. Frá heimilunum þremur verða tengigangar við þjón- ustumiðstöðina, svo fólk þurfi ekki að fara út þegar veður eru misjöfn. Blokkin við Kleppsveg vel á veg komin Þá vil ég geta um að á lóð Sjómannadagsráðs að Kleppsvegi 62 er nú verið að byggja 38 íbúða blokk. Hún er mjög langt á veg komin og er vonast til að fyrstu íbúarnir muni flytja þar inn í nóvember eða desem- ber á þessu ári. Ibúarnir þar munu sjálfir eiga íbúðirnar en njóta þjónustu heimilisins á Hrafnistu. Þannig er hér verið að koma eftir megni til móts við þær vonir að aldraðir geti dvalið sem allra lengst í eigin íbúð. Þá er komið að því að minnast á endurbætur sem gerðar hafa verið á Hrafnistu í Reykjavík og má þá fyrst nefna eldhúsið. Á því hafa nú verið gerðar miklar lagfæringar og margt Guðmundur Hallvarðsson: Við munum því eftir sem áður horfa fram á veginn og hugleiða hvert stefhir í málefnum aldraðra. " fært til nýtískulegasta forms, enda eldum við hér mat handa á áttunda hundrað manns eða þar um bil, því við eldum einnig fyrir hjúkrunarheim- ilið Skjól. Þá hafa umbætur verið gerðar á þvottahúsinu, en megin- hlutinn af óhreinum þvotti frá Hrafnistu í Hafnarfirði er þveginn hér. Á Hrafnistu í Hafnarfirði hefur mat- salnum verið breytt, enda hafði hann dregist nokkuð aftur úr og var ekki lengur í samræmi við þau gæði í þjónustu sem einkennir heimilið á öllum öðrum sviðum. Hann hefur nú tekið stórfelldum stakkaskiptum og meðal annars er þar nú komið kaffi- teríu"-kerfi og salurinn í hvívetna ríkulega búinn. Verður þess líka vart að fólk situr nú lengur í salnum en var og nýtur máltíðanna betur. Þótt starfið sé svo umfangsmikið höfum við orðið að taka mið af þeim niðurskurði sem orðið hefur á fram- lagi þess opinbera og hagræða eftir því sem framast er unnt. Sem betur fer er það starfsfólk sem við höfum á að skipa alveg einstakt og hefur tekið margháttaðri hagræðingu mjög vel og af skilningi. SJÓMANNADAGSBLADIÐ