vörpuskipaeigenda gert Sjómanna- félaginu tilboð sem fól í sér mikla launalækkun og var því með öllu hafn- að. Þann 19.júní um sumarið auglýstu útgerðarmenn eigi að síður áþekkan taxta. Sjómannafélagið svaraði með verkfalli og því að leggja afgreiðslu- bann á öll þau skip sem reyndu að ráða verkfallsbrjóta í Reykjavík eða annars staðar á landinu. Kom til ham- rammra átaka við höfnina í Reykjavík er Sjómannafélagsmenn vörnuðu því að vatni væri dælt um borð í togarann Gulltopp. Lét útgerðarmaður skipsins undan um síðir og réði menn upp á sömu kjör og áður. En aðrir útgerðar- menn sömdu ekki fyrr en eftir um mánaðarlangt verkfall og þótt báðir slægju nokkuð af kröfum sínum var þetta eftir sem áður stórt skref í þá veru að styrkja Sjómannfélagið sem samningsaðila og treysta stöðu þess. Skref fyrir skref Hér hefur verið getið um nokkra upphafsáfanga, upphaf baráttusögu sem staðið hefur fram á þennan dag. Margir sigrar eru flestum gleymdir Arlega efnir félagið til jólatrésskemmtunar Jyrir börn félagsmanna. Þessi mynd er tekin i Lindarb 1977. eins og verkfallið 1929 í upphafi kreppunnar þegar sjómenn unnu frækilegan sigur eftir nær tveggja mánaða verkfall. Þótt hugrið væri tekið að sverfa að mörgu sjó- mannsheimili gengu tugir manna í Sjómannafélagið meðan á deilunni stóð, svo félagsmönnum fjölgaði og Sjómannafélagsmenn hafa ekki látið sitt eftir liggja í keppnisgreinum Sjómannadagsins. Hér má sjá áhöfhina á Frera sem bar sigur afhólmi í knattspyrnukeppni frystitogara á sl. ári. þeir efldust að samtakamætti og félagsþroska. Og fleira má minnast á baráttuna fyrir áhættuþóknuninni á stríðs- árunum og fyrir sjómannatrygging- unum. Enginn skyldi halda að vökulögin 1921 hafi náðst fram án baráttu og það gerðu vökulögin sem sett voru 1928 og gerðu ráð fyrir 8j stunda hvíld togarasjómanna a sólarhring ekki heldur. Þá hefur Sjómannafélagið sem fleir' samtök sjómanna og SVFÍ stuðlað að endurbótum í öryggismálum með þeim árangri að viðhorf til þeirra mála eru nú gjörbreytt frá fyrri árum. Kröfurnar breytast með breyttum atvinnuháttum í tímans rás og breytt- um viðhorfum til þess hvaða lífs' kjörum menn hafa talið hægt að una- Sífellt koma upp ný baráttumál og síðustu árin er það ný flutningatækm og fiskveiði- og fiskvinnslutækni sem skapað hefur hvað alvarlegasta ógnun við kjör jafint fiskimanna sem far- manna. Þeim málum eru gerð góð sku í viðtölum við þá forystumenn Sjómannafélags Reykjavíkur sem fara hér á eftir. 20 SJÓMANNADAGSBLAÐlP .