- unnar Eiriksson: Ef kröfurnar erufáar og jarra manna hendi mun irangurinn verða 'klu meiri." (Ljósm. Sjómannadags- biaðiS/Björn Pálsson). Hef aldrei verið maður Sjómannasambandsins" Rætt við hinn gamalreynda togaramann og stjómarmann í Sjómannafélagi Reykjavíkur, Gunnar Eiríksson unnar Eiríksson hefur setið í stjórn Jornannafélags Reykjavíkur sl. fjögur ar- Hann hefur alla tíð verið einlægur a"ugamaður umfélagið og ekki látið sig anta áfundi þess hafi hann komiðþví 1 enda gegnt ýmsum trúnaðarstörf- "*> svo sem setu í samninganefhdum. ann segir að sér hafi líka þótt vænt um f'i J ag sitt, þrátt fyrir að vissulega hafi ann verið missáttur við árangurinn á um - eins og gengur. Ofi höfum við nð skarðan hlut frá borði, en stund- 171 unnið áfangasigra og þá hefur a"ur veriðánægður"segir hann. Hann jddur á Seltjarnarnesinu en segist "**¦ alltaf líta á sig sem Reykvtking, "**¦ hefur hann búið þar frá þriggja a JJógurra ára aldri. En við spyrjum hann fyrst sem aðra viðmlendur okkar um ætt og uppruna. Eg er fæddur þann 25. mars árið 1923 og voru foreldrar mínir þau Halldóra Árnadóttir og Eiríkur Sveinsson,,, segir Gunnar. Pabbi var Akurnesingur og lengst af togarsjó- maður á fjölda togara, og getur það hafa átt þátt í að hugurinn leitaði á sjóinn þegar að því kom að ég veldi mér lífsstarf. En ekki hafði það síður sín áhrif að foreldrar mínir skildu og gerðist þá senn þörf á að við systkinin, en við vorum sex og ólumst flest upp hjá mömmu, færum að leggja eitthvað til heimilisins. Samt gerðist ekkert af okkur sjómaður nema ég. En kjörin voru knöpp: Mamma vann við heim- ilishjálp hjá Héðni heitnum Valdimarssyni og hann reyndist henni mjög vel á þessum þrengingaárum og var næstum dýrlingur í hennar augum." Daníelsslippurinn hafði mikið aðdráttarafl Við bjuggum lengi á Bakkastíg og þaðan var skammt niður að höfninni, og ekki síst laðaði Daníelsslippurinn mann að sér. Þar fylgdist maður með byggingu bátanna sem Jón heitinn Þorláksson borgarstjóri lét smíða á þessum árum -.Ásgeir, Jón Þorláksson, Aðalbjörgina o. fi. Þetta fundust manni vera mikil og glæsileg skip. Vildi raunar svo til að fyrstu sjóferðina mína fór ég á Jóni Þorlákssyni, en þar var þá skipstjóri Guðmundur Þorláksson frá Isafirði. Meðan ég var að sniglast í kringum karlana í slippn- um fór ég gjarna í sendiferðir fyrir þá, ^Iöman NADAGSBLAÐIÐ 39