~sveit Ymis sigraði í kappróðri sjómanna. k J°rgunarsveit Fiskakletts dregur ofur- &nn Jón H. Hafsteinsson úr bílnum & úti á höfninni. Þyrla Gæslunnar og björgunarsveit Fiskakletts sýna björgun. &ajólkið bíður eftirplássi í skemmtisiglinguna. Á sjálfan Sjómannadaginn voru fánar dregnir að húni kl. 08.00. Kl. 10.00 lék Lúðrasveit Hafnarfjarðar við Hrafnistu í Hafnafirði fyrir vistmenn og kl. 10.30 var sjómannamessa í Víðistaðakirkju. Að lokinni messu afhjúpaði sjómannsekkja, Friðrika Bjarnadóttir, minnisvarða um horfna sjómenn. Guðbjörg Magnúsdóttir, sem einnig er sjómannsekkja, lagði blómsveig frá hafnfirskum sjómönn- um að minnisvarðanum. Minnis- varðinn heitir Altari sjómannsins" og er gerður af listamanninum Erlingi Jónssyni. Eftir hádegi var farið í skemmtisiglingu sem alltaf er vel þegin af unga fólkinu. Kl. 14.00 var hátíðardagskrá sett við suðurhöfnina og var Guðmundur Jónsson skipstjóri kynnir. Flutt voru ávörp og talaði Ragna Helgadóttir fyrir S.V.D.K. Hraunprýði. Helgi Einarsson talaði fyrir hönd útgerðarmanna og ávarp sjó- manna flutti Guðjón A. Kristjánsson formaður F.F.S.Í. Guðmundur Ólafsson fyrrverandi skipstjóri heiðraði aldraða sjómenn með heiðursmerki Sjó- mannadagsins. Þeir voru: Páll Guðmundsson, Sigurgeir Guðmunds- son, Gunnar Halldórsson og Björn Fr. Björnsson. Síðan var farið í kappróður, og var keppt í karla- og kvennasveitum. Fyrst kepptu sjósveitir og þar var áhöfnin á Ými með tvær sveitir A og B. Hringur, Venus, Rán og Sjóli voru með eina sveit hver og sigraði A-sveit Ýmis. Af landsveitum karla sigraði sveit Götustráka og Götustelpur sigruðu í ¦JNADAGSBLADIÐ 73