Minnismerki afhjúpað á Akranesi Á Sjómannadaginn í fyrra var afhjúp- að í kirkjugarðinum á Görðum á Akranesi minnismerki helgað þeim einstaklingum úr Akranessöfnuði sem farist hafa og ekki fundist. Sr. Björn Jónsson framkvæmdi vígsluna en tvær konur, sjómannsekkjan Valdís Guðnadóttir og móðir horfins sjó- manns, Þuríður Jónsdóttir, afhjúpuðu minnisvarðann. Forsögu þessarar framkvæmdar má rekja til hinna miklu sjóslysa sem Akurnesingar urðu fyrir á árinu 1993. Eftir viðræður við marga aðstand- endur þeirra sem fórust og fyrir ein- Frd vígslu minnismerkis áAkranesi umþd semfarist hafa og ekkifundw- (Ljósm. Jón Gunnlaugsson) dregna hvatningu þeirra bar séra Björn Jónsson upp tillögu á sóknarnefndar- fundi um að reist yrði slíkt minnis- merki. Tillagan var samþykkt og fljótlega hafist handa við framkvæmdir undir forystu Jóhann- esar Ingibjartssonar sóknarnefndar- manns. Afmarkaður var 7x7 metra minningarreitur og í honum miðjum reist stuðlabergssúla með áletrunum og táknum. Umhverfis hana er komið fyrir fjörussteinum, slípuðum á einni hlið. Þar á eru festir skildir með nöfnum þeirra sem farist hafa, ásamt fæðingar- og dánardegi. Sú ákvörðun var tekin að fara til að byrja me° aðeins 20 ár aftur í tímann og setja aðeins upp minningarskildi þar serfl þess væri óskað af aðstandenaum Hins vegar telur sóknarnefnd sjálfsagt að heimila uppsetningu minningarsk' jalda þeirra sem fyrr hafa farist, hvort sem um er að ræða heilar skipsharni' eða einstaklinga úr söfnuðinum. Hönnun og gerð minnismerkisi115 annaðist Steinsmiðja S. Helgasonar ru- í Reykjavík í samráði og samstarfi vlð sóknarnefnd Akraness. y%/ifa/?z fr&u///?/ á^o/j^/m/ii//?^ á^/i/^/e/&A>ts* Vélskóli Islands í húsi Sjómannaskólans 76 SJÓMANNADAGSBLAgí^